
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Leikskólinn Kiðagil: Leikskólakennari
Leikskólinn Kiðagil óskar eftir að ráða leikskólakennara eða starfsmann með aðra háskólamenntun (B.s. B.a. eða B.ed) sem nýtist í starfi. Um er að ræða ótímabundna 100% stöðu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst 2025.
Í Kiðagili er lögð áhersla á Leikskólalæsi á öllum deildum þar sem leikið er með bókstafi, rím og hljóð. Skólinn er umhverfisvænn og starfar eftir SMT-styðjandi skólafærni
Einkunnarorð skólans eru „fagmennska, virðing, leikur og læsi“.
Ertu hugmyndaríkur, lausnamiðaður, jákvæður og duglegur einstaklingur með dygga þjónustulund og vilt vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://kida.is
Ert þú tilbúin til að vera með okkur í liði og leggja þitt af mörkum?
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
- Taka þátt í gerð skólanámskrár, útfyllingu þroskamats, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
- Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna. Sitja fundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
- Vinna eftir uppeldisstefnu SMT.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi eða annarri háskólamenntun (B.s. B.a. eða B.ed) sem nýtist í starfi leikskólans.
- Reynsla af starfi í leikskóla er kostur.
- Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum, sveigjanlegum og mjög jákvæðum einstaklingum.
- Reglusemi og samviskusemi.
- Afar mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði í starfi og sé tilbúinn til að takast á við skemmtilegt starf með börnum.
- Viðkomandi þarf að vera tilbúin til að leita leiða og nýta tækifærin sem gefast við mótun skólans með skólaþróun að leiðarljósi.
- Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
- Umsækjandi þarf að hafa gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli og geta átt samskipti á íslensku við nemendur, samstarfsfólk og foreldra.
- Þekking á SMT/PMTO er kostur
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published5. May 2025
Application deadline16. May 2025
Language skills

Required
Location
Kiðagil 9, 603 Akureyri
Type of work
Skills
ProactivePositivityHuman relationsIndependenceFlexibility
Professions
Job Tags
Other jobs (8)

Leikskólinn Naustatjörn á Akureyri: Starfsfólk í leikskóla
Akureyri

Glerárskóli: Starfsfólk í íþróttahúsi með stuðning
Akureyri

Glerárskóli: starfsfólk með stuðning í skólastarfi
Akureyri

Glerárskóli: Skólaliði
Akureyri

Plastiðjan Bjarg-Iðjulundur: Verkstjóri í vélasal
Akureyri

Ráðgjafi í málefnum fatlaðs fólks á velferðarsviði
Akureyri

Lundarskóli: Matráður
Akureyri

Brekkuskóli: Sérkennari, þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi
Akureyri
Similar jobs (12)

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Heilsuleikskólinn Heiðarsel - Leikskólakennarar/starfsfólk
Reykjanesbær

Heilsuleikskólinn Heiðarsel - Sérkennari
Reykjanesbær

Leikskólakennari óskast í Efstahjalla
Efstihjalli

Leikskólakennari óskast fyrir skólaárið 2025-2026
Heilsuleikskólinn Skógarás

Leikskólakennari óskast á Heilsuleikskólann Holtakot
Heilsuleikskólinn Holtakot

Leikskólastjóri óskast í leikskólann Hulduberg
Leikskólinn Hulduberg

Leikskólakennari / leiðbeinandi - Kirkjubæjarskóli
Skaftárhreppur

Deildarstjóri óskast í heilsuleikskólann Urriðaból
Urriðaból Garðabæ

Leikskólakennari/leiðbeinandi í Urriðaból
Urriðaból Garðabæ

Deildarstjóri óskast
Efstihjalli

Deildarstjóri óskast í leikskólann Nóaborg, Stangarholti 11
Leikskólinn Nóaborg