Framtíðarfólk ehf.
Framtíðarfólk ehf.

Leikskólakennari óskast

Framtíðarfólk ehf. rekur leikskólann Áshamar, nýjan og framsækinn leikskóla sem hóf starfsemi 1. apríl 2025. Áherslur okkar eru skýrar: hæglæti í leik og námi, útikennsla og vellíðan barna og starfsfólks. Við trúum því að börn þurfi tíma, tækifæri og rými til að læra í gegnum leik og að dýrmætustu augnablikin í leikskólastarfi verði til þegar við hægjum á okkur og njótum samverunnar í náttúrunni eða í skapandi verkefnum innan dyra.
Nánari upplýsingar um Framtíðarfólk má finna á framtidarfolk.is.
Við leitum að leikskólakennara sem deilir okkar sýn og brennur fyrir því að skapa nærandi og örvandi umhverfi fyrir börn.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggja og leiða daglegt uppeldis- og kennslustarf í samræmi við námskrá leikskóla og stefnu Framtíðarfólks
  • Stuðla að hæglæti og yfirveguðu vinnulagi í leik og námi barna
  • Skipuleggja og taka þátt í útikennslu og útiveru með börnum
  • Veita börnum stuðning við félags- og tilfinningaþroska, málþroska og leik
  • Vinna náið með samstarfsfólki að þróun faglegs starfs, nýsköpun og gæðum skólastarfs
  • Halda utan um dagbókarskráningu, foreldrasamskipti og önnur samskipti sem tengjast starfinu
  • Tryggja öryggi og vellíðan barna á öllum stundum
  • Taka þátt í endurmenntun og fræðslu eftir því sem við á
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun
  • Menntun og/eða reynsla af faglegri þróun og stefnumótun í leikskólastarfi er kostur
  • Jákvætt viðhorf, góð samskiptafærni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Áhugi á nýsköpun í leikskólastarfi og innleiðingu nýrra kennsluhátta
  • Íslenskukunnátta á stigi C2 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög leikskóla nr. 90/2008
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn
  • Ferilskrá
  • Stutt kynningarbréf
  • Staðfest afrit af prófskírteinum
  • Upplýsingar um umsagnaraðila
Advertisement published15. December 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Áshamar 9
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Teaching
Work environment
Professions
Job Tags