

Leikskólakennari
Leikskólinn Bláskógar á Laugarvatni auglýsir eftir leikskólakennara til starfa í 100% stöðu. Leikskólakennari starfar samkvæmt stefnumörkun leikskólans sem tekur meðal annars mið af skólastefnu Sveitarfélagsins Bláskógabyggðar, aðalnámskrá leikskóla, lögum og reglugerðum um leikskóla sem og öðrum lögum er við eiga.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og Félags leikskólakennara en tímabundin viðbótarlaun greiðast vegna átaksverkefnis til að fjölga leikskólakennurum. Umsóknum fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð. Starfið hentar öllum óháð kyni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í uppeldi og menntun leikskólabarna.
- Að fylgjast með velferð leikskólabarna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins.
- Þátttaka í teymisvinnu, foreldrasamstarfi og faglegum verkefnum.
- Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
- Þátttaka í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum.
- Að gæta að öryggi leikskólabarna, menntun, þroska þeirra og líðan.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara, sbr. lög nr. 95/2019, III kafli 9. grein og IV kafli 20. grein.
- Reynsla í leikskólastarfi æskileg.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni og áhugi í starfi með börnum.
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
- Færni í ræðu og riti.
- Góð íslenskukunnátta æskileg.
Fríðindi í starfi
- Tímabundin viðbótarlaun
- Yfirvinnugreiðslur (6 klst.)
- Ívilnun vegna aksturs
- Fatastyrkur
- Frítt fæði
- Stytting vinnuvikunnar
- Sund/líkamsræktarkort Bláskógabyggðar
- Skapandi starfsumhverfi
Advertisement published30. September 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
Location
Skólavegur 13, 806 Reykholt
Lindarbraut 6, 840 Laugarvatni
Type of work
Skills
General computer knowledgeProactivePositivityTeacherHuman relationsIndependencePlanningTeam work
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sérkennsla - Stuðningur
Leikskólinn Furuskógur

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár
Leikskólinn Bláskógar

Leikskólakennari óskast
Helgafellsskóli

Bæjarból - leikskólakennari/leikskólasérkennari 50%/(100%)
Garðabær

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Kópahvoll óskar eftir kennurum vegna stækkunar
Kópahvoll

Deildarstjóri óskast á Kópastein
Kópasteinn

Sérkennari eða þroskaþjálfi í Núp
Núpur

Kennari í íslensku sem öðru máli – Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérkennslustjóri / aðstoðarleikskólastjóri
Mánaland