
Grindavíkurbær
Í Grindavík er samhent og metnaðarfullt samfélag þar sem nálægð og samvinna einkenna daglegt líf. Á sama tíma stendur yfir uppbygging sem felur í sér einstakt tækifæri til að hafa áhrif og taka þátt í mótun framtíðar samfélagsins.
Hjá Grindavíkurbæ starfar öflugur hópur fólks þar sem fagmennska, samvinna og lausnamiðuð hugsun eru í forgrunni. Lögð er rík áhersla á að veita framúrskarandi þjónustu og skapa umhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og hafa raunveruleg áhrif.

Leikskólakennarar óskast til starfa við nýjan samrekinn leik- og grunnskóla
Nýr samrekinn leik- og grunnskóli í Grindavík leitar að leikskólakennurum fyrir skólaárið 2026-2027. Um er að ræða 80% -100% stöður.
Markmiðið er að skapa styðjandi og framsækið námsumhverfi þar sem öryggi, farsæld, nám og þroski barna eru í forgrunni og samfella í námi og þjónustu við börn og fjölskyldur er tryggð.
Skólinn tekur til starfa 1. ágúst 2026 og gert verður ráð fyrir börnum og nemendum frá 12 mánaða aldri til 10. bekkjar. Ef þú vilt taka þátt í því spennandi verkefni að endurbyggja metnaðarfullt skólastarf í Grindavík, þá erum við að leita að þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara eða leiðbeinenda í leikskóla
- Fylgjast vel með velferð barnanna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar
- Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs leikskólans í samstarfi við stjórnendur
- Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barna
- Vinna að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
- Taka þátt í teymisvinnu innan skólans
- Sinna öðrum þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barna sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem kennari. Ef ekki fæst kennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi tímabundið
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun sem nýtist í starfi
- Einlægur áhugi og metnaður fyrir að starfa með börnum
- Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Þekking og hæfileikar til að vinna að framsæknu skólastarfi
- Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta
Advertisement published15. May 2026
Application deadline31. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Víkurbraut 62, 240 Grindavík
Type of work
Skills
TeacherTeaching
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Leikskólakennarar óskast í Krikaskóla fyrir næsta skólaár
Krikaskóli

Leikskólakennari í Vinabæ
Vesturbyggð

Kennari eða leiðbeinandi í Leikskólann Aðalþing
Aðalþing leikskóli

Útinámskennari í leikskólann Aðalþing
Aðalþing leikskóli

Leikskólakennari í Leirvogstunguskóla
Leirvogstunguskóli

Leikskólakennarar óskast
Reykhólahreppur

Kennarar í Auðarskóla, Búðardal
Auðarskóli

Umsjónarkennari á yngsta stigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Skýjaborg auglýsir eftir leikskólasérkennara / þroskaþjálfa
Leikskólinn Skýjaborg

Aðstoðarleikskólastjóri við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði
Leikskólinn Lyngholt

Höfðaberg óskar eftir leikskólakennurum fyrir næsta skólaár
Leikskólinn Höfðaberg

Drafnarsteinn auglýsir eftir deildarstjóra
Leikskólinn Drafnarsteinn