Súðavíkurhreppur
Súðavíkurhreppur

Laus staða skólastjóra við Súðavíkurskóla

Súðavíkurskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með einum stjórnanda, áætlað að það verði u.þ.b. 30 nemendur, þar sem unnið er eftir Uppbyggingarstefnunni og starfið hverfist um einkunnarorðin: Vellíðan – Virðing – Framfarir – Heiðarleiki. Þá er lögð áhersla á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti, vellíðan nemenda og samvinnu starfsmanna. Við grunnskólann næsta vetur verður einungis 1.-7. bekkur.

Umsókn skal skilað til Önnu Lindar Ragnarsdóttur skólastjóra, á netfangið [email protected] og með umsókn skal fylgja ferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi. Umsóknarfrestur er til 19. júní 2026.
Allar nánari upplýsingar veitir Anna Lind Ragnarsdóttir skólastjóri í síma 450 5911 og gsm 893 4985 eða í gegnum netfangið [email protected] og eða [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð

Stjórnun leik-grunn- og tónlistarskóla skv. aðalnámskrám þessa skólagerða

Menntunar- og hæfniskröfur

Helstu hæfniskröfur eru kennsluréttindi í tónlistar-, grunn- og leikskóla og reynsla af kennslu er kostur. Hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og samviskusemi. Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í starfi. Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu í ræðu og riti. Kostur er að þekkja byrjendalæsi og leiðsagnarnám. 

Advertisement published1. June 2026
Application deadline19. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Súðavíkurskóli
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags