

Læknir -Tímabundið starf
Læknir með lækningaleyfi óskast í starf á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga. Um er að ræða tvö tímabundin störf til sex mánaða frá 1. apríl 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Starfið felur í sér göngudeildarvinnu á dag- og göngudeild blóð- krabbameinslækninga 11 B/C, Brjóstamiðstöð og göngudeild geislameðferðar. Starfsumhverfið er lærdómsmiðað. Læknirinn fær sérstaka starfslýsingu, aðlögun og skipulagða handleiðslu sérfræðilæknis.
Unnið er í náinni samvinnu við sérfræðilækna í krabbameinslækningum; bæði í lyflækningum og geislameðferð krabbameina og felur starfið í sér þverfaglega teymisvinnu með öðrum sérgreinum læknisfræðinnar sem koma að greiningu og meðferð krabbameina, s.s. skurðlækningum, lyflækningum, myndgreiningu og meinafræði. Einnig er góð samvinna við aðrar starfsstéttir innan starfseminnar.
Starfið nýtist afar vel þeim sem hafa hug á frekara sérnámi í krabbameinslækningum en einnig þeim sem hugsanlega hyggja á frekara sérnám í öðrum greinum sem koma að greiningu og meðferð krabbameina, svo sem á sviðum lyf- og skurðlækninga.
Fagleg árvekni og endurskoðun klínískra leiðbeininga og verkferla er hluti af fagmennsku deildarinnar.
Vinnulagið á deildinni byggir á samvinnu margra starfsstétta með það að markmiði að einstaklingar sem greinst hafa með krabbamein fá viðeigandi meðferð og stuðning.
- Þátttaka í ráðgjöf varðandi meðferð þeirra sem nýlega eru greindir með krabbamein, gerð meðferðaráætlunar og eftirlit með sjúklingum á meðan meðferð stendur
- Greina og meðhöndla vandamál tengd krabbameinum og lyfja- og geislameðferð
- Þátttaka í samvinnu ólíkra sérgreina læknisfræðinnar s.s. eins og samráðsfundum
- Þátttaka í gæða- og umbótastarfi
- Þátttaka í kennslu og vísindastarfi
- Möguleiki á sérhæfðari þjálfun í geislameðferð fyrir áhugasama.
- Þátttaka í vöktum sérgreinar
- Íslenskt lækningaleyfi
- Sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi lokið við upphaf starfs
- Góð færni og lipurð í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Áhugi á að bæta þekkingu og færni í starfi
- Gott vald á íslensku máli
Icelandic
























































