
Kynningarfulltrúi
Kennarasamband Íslands auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf kynningarfulltrúa á skrifstofu sambandsins. Um er að ræða ráðningu til sex mánaða með möguleika á framlengingu.
Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til starfa á skrifstofu sambandsins. Um er að ræða fjölbreytt og skapandi starf þar sem áhersla er lögð á greinaskrif, framsetningu efnis, útgáfu og miðlun upplýsinga til félagsfólks og almennings. Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í að efla sýnileika og ímynd KÍ, styðja við innra og ytra upplýsingaflæði og taka þátt í skipulagningu funda, viðburða og stefnumótunarverkefna.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi framúrskarandi samskiptahæfni, geti unnið sjálfstætt og í teymi, sýni frumkvæði í starfi og hafi drifkraft og vilja til að styðja við starfsemi og markmið KÍ.
- Greinaskrif, framsetning og uppfærsla efnis í ritum og á miðlum KÍ og aðildarfélaga
- Umsjón með útgáfu efnis
- Skipulagning á viðburðum og fundum KÍ
- Þátttaka í ímyndar- og stefnumótunarvinnu
- Önnur verkefni í samráði við yfirmann
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af blaða- eða fréttamennsku er æskileg
- Áhugi og þekking á skólamálum er kostur
- Afburða íslenskukunnátta í ræðu og riti
- Reynsla af textaskrifum
- Þekking og reynsla af birtingu efnis á samfélagsmiðlum
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla af ljósmyndun og myndvinnslu er kostur
Icelandic
