
Icelandia
Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun.
Undir vörumerki Icelandia starfa:
Almenningsvagnar Kynnisferða
Dive.is
Flybus
Garðaklettur
Hópbifreiðar Kynnisferða
Icelandic Mountain Guides
Reykjavik Excursions
Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Almenningsvagnar Kynnisferða eiga 58 strætisvagna og sjá um viðhald og rekstur þeirra. Félagið sinnir akstri á 11 leiðum fyrir Strætó bs á höfuðborgarsvæðinu.
Dive.is sérhæfir sig í köfunar- og snorklferðum í Silfru auk þess að vera fimm stjörnu PADI köfunarskóli.
Flybus býður upp á akstur á milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Garðaklettur á og sér um viðhald og rekstur á dráttarbílum ásamt því að sinna vörubílaakstri.
Hópbifreiðar Kynnisferða heldur utan um rekstur hópbifreiða af öllum stærðum.
Icelandic Mountain Guides hafa verið í fararbroddi íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja á sviði afþreyingar, göngu- og fjallaferðum og bjóða meðal annars upp á fjórhjólaferðir, jöklaferðir og styttri og lengri gönguferðir.
Reykjavik Excursions er eitt elsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins og býður upp á dagsferðir í Bláa Lónið, Gullna hringinn, Jökulsárlón, norðurljósa ferðir og margt fleira.
Icelandia leitar að áhugasömu starfsfólki sem nýtir þekkingu og reynslu í daglegum störfum í jákvæðu starfsumhverfi.
Fyrirtækið er ISO 14001 vottað og er það markmið okkar að nálgast náttúruna með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Kynningarfulltrúi
Við leitum að hressum og söludrifnum einstaklingi í hlutastarf við að keyra út og stilla upp kynningarbæklingum hjá samstarfsaðilum, svo sem hótelum og upplýsingamiðstöðvum. Starfið hentar vel fyrir einstakling sem er jákvæður í samskiptum, hefur gaman af sölutengdum verkefnum og auga fyrir snyrtilegri uppstillingu og framsetningu.
Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.
Job description in English is available by clicking "Sækja um".
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dreifing og uppstilling kynningarefnis á Höfuðborgarsvæðinu.
- Viðhalda góðu samstarfi við starfsfólk gististaða og upplýsingamiðstöðva.
- Tryggja að kynningarefni sé áberandi og vel fram sett.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Vera sölumaður í eðli og þora að taka frumkvæði.
- Reynsla af sölustörfum er kostur.
- Gild ökuréttindi og bíll til umráða eru skilyrði.
- Sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og áreiðanleiki.
- Hafa gott auga fyrir framsetningu og skipulagi.
- Góð íslensku- eða enskukunnátta er skilyrði.
Advertisement published31. March 2026
Application deadline15. April 2026
Language skills
IcelandicOptional
EnglishRequired
Location
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PositivityHuman relationsDriver's licenceSalesProduct presentation
Suitable for
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (1)
