Kópavogsskóli
Kópavogsskóli
Kópavogsskóli

Kópavogsskóli - deildarstjóri stoðþjónustu

Kópavogsskóli auglýsir eftir öflugum deildarstjóra fyrir stoðþjónustu.

Kópavogsskóli er heildstæður grunnskóli með um 420 frábæra nemendur og um 85 kraftmikla starfsmenn. Í skólanum er sérdeild fyrir nemendur á mið- og unglingastigi og frístundaheimili fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og lögð er áhersla á skapandi og framsækið skólastarf.

Í Kópavogsskóla eru allir kennarar og nemendur í 1. – 10. bekk með spjaldtölvur og mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti.

Einkennisorð skólans eru vinátta, virðing, vellíðan. Góður starfsandi er í skólanum.

Upplýsingar um Kópavogsskóla og skólastarfið er að finna á www.kopavogsskoli.is.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýrir daglegu starfi innan stoðþjónustu skólans ásamt því að sinna starfsmannahaldi þar eins og við á
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Aflar og miðlar upplýsingum innan sem utan skóla vegna nemenda sem glíma við áskoranir
  • Vinnur að einstaklingsáætlunum í samstarfi við sérkennara
  • Boðar og stýrir skilafundum vegna nemenda með sérþarfir í samstarfi við deildarstjóra stigs
  • Heldur utan um skimanir og greiningar nemenda
  • Styður við starfsfólk stoðþjónustunnar og veitir faglega ráðgjöf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu 
  • Menntun á sviði sérkennslu, þroskaþjálfa, iðjuþjálfa, atferlisþjálfa, félagsráðgjafar eða sérkennslu æskileg
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki skilyrði
  • Þarf að vera tilbúinn að vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi mikilvægt
  • Mjög góð íslenskukunnátta
  • Þekking á Uppeldi til ábyrðar æskileg
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Advertisement published30. April 2026
Application deadline14. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Digranesvegur 15, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags