Klettaskóli
Klettaskóli

Klettaskóli - Hjúkrunafræðingur í Klettaskóla - starfsstöð Korpuskóli (Bakkastaðir 2)

Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir og leitum við að hjúkrunarfræðingi með starfsstöð í Korpuskóla, Bakkastöðum 2. Einkennisorð skólans eru "Menntun fyrir lífið".

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við ýmis verkefni sem tengjast umönnun, heilsueflingu og heilsuvernd nemenda í nýjum skóla og verða þar með hluti af öflugu teymi skóla og frístundar frá 1. ágúst 2026.
Skólastjóri er næsti yfirmaður hjúkrunarfræðings.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og ábyrgð á lyfjagangi
  • Aðstoð og stuðningur við nemendur, foreldra og starfsfólk
  • Umsjón með samskiptum við 3. aðila varðandi heilsu nemenda
  • Sitja teymisfundi og leiða teymisfundi þegar þess er óskað
  • Leiðbeina og kenna starfsfólki skólans
  • Forvarnir, heilsuefling og heilsuvernd
  • Önnur tilfallandi verkefni sem skólastjórnendur fela hjúkrunarfræðingi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði
  • Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum er skilyrði
  • Stundvísi og áreiðanleiki er mikill kostur
  • Reynsla af störfum á heilsugæslu er kostur
  • Reynsla af störfum með börnum/unglingum er mikill kostur
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði (C1)
Advertisement published17. May 2026
Application deadline27. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Bakkastaðir 2, 112 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags