Kjálkaskurðlæknar í Álftamýri
Kjálkaskurðlæknar í Álftamýri

Kjálkaskurðlæknar í Álftamýri óska eftir að ráða aðstoðamanneskju skurðlæknis til starfa.

Kjálkaskurðlæknar í Álftamýri óska eftir að ráða aðstoðarmanneskju skurðlæknis til starfa með heilbrigðismenntun eða reynslu af störfum á skurðstofu.

Starfshlutfall er 75-100% eftir samkomulagi og æskilegt væri að geta hafið störf sem fyrst en ekki skilyrði.

Starfið er mjög fjölbreytt og felur í sér að aðstoða skurðlækni við aðgerðir, sótthreinsun áhalda og umönnun og samskipti við sjúklinga.

Hæfniskröfur:

  • Þjónustulund, jákvæðni, góð samskiptahæfni og metnaður í starfi

  • Hæfni til að sýna frumkvæði, vinna sjálfstætt ásamt því að vinna með öðrum

  • Geta og áhugi á að vinna undir álagi við spennandi verkefni þar sem enginn dagur er eins

Á stofunni starfa tveir kjálkaskurðlæknar, hjúkrunarfræðingar, svæfingalæknir, geislafræðingur og ritari.

Áhugasamir geta fengið frekari upplýsingar eða sent umsókn á [email protected]

Guðmundur Á. Björnsson og Olga Hrönn Jónsdóttir

Advertisement published1. April 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Álftamýri 1-5, 108 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags