Fjölmennt
Fjölmennt

Kennari hjá Fjölmennt

Fjölmennt, símenntunar- og þekkingarmiðstöð auglýsir eftir kennara næsta skólaár. Fjölmennt sinnir símenntun fyrir fatlað fólk frá 20 ára aldri, einkum fólk með þroskahömlun og fólk á einhverfurófi. Fjölmennt býður upp á fjölbreytt námskeið, sjá heimasíðu stofnunarinnar www.fjolmennt.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Undirbúningur og kennsla á námskeiðum Fjölmenntar 

Menntunar- og hæfniskröfur

Hjá Fjölmennt starfa kennarar með ólíka menntun. Reynsla af starfi með fötluðu fólki er skilyrði. Sérstaklega er leitað að kennara sem hefur reynslu af starfi með fólki sem þarf mikinn stuðning og sem tjá sig ekki  með talmáli. Því er æskilegt að kennari hafi þekkingu á fjölbreyttum tjáskiptaleiðum 

Jákvæðni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Stundvísi og samviskusemi

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Laun eru samkvæmt samningi við Félag framhaldsskólakennara

Möguleiki á hlutastarfi.

Advertisement published12. June 2026
Application deadline21. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Vínlandsleið 12-14, 113 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Teacher
Professions
Job Tags