Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir

Leikskólinn Hörðuvellir auglýsir eftir leikskólakennurum í fullt starf

Við á Hörðuvöllum erum að leita að kraftmiklum og reynslumiklum leikskólakennara sem vill gera hvern dag að ævintýri fyrir börn!

Ef þú elskar leik, sköpun og samvinnu og vilt vinna í frábæru teymi þar sem gleði, virðing og fagmennska eru í fyrirrúmi, þá viljum við heyra frá þér. Við bjóðum upp á gott starfsumhverfi, tækifæri til starfsþróunar og stuðning í starfi – og auðvitað kaffi og hlátur alla daga.

Vertu hetjan sem börnin okkar bíða eftir!

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara, hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaða einstaklinga eða einstaklinga með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sverrir Jörstad Sverrisson leikskólastjóri, [email protected] eða í síma 555-0721.

Umsóknarfrestur til og með 19. febrúar 2026

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published5. February 2026
Application deadline19. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Tjarnarbraut 30, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags