Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli
Hörðuvallaskóli

Íþróttakennari í Hörðuvallaskóla

Hörðuvallaskóli leitar að íþróttakennara

Í Hörðuvallaskóla eru um 515 nemendur í 1.- 7. árgangi og um 90 starfsmenn. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf og unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Gildi skólans eru virðing, heiðarleiki og þrautseigja.

Í Hörðuvallaskóla er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur og kennarar skólans með spjaldtölvur. Mikil áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymiskennslu, leiðsagnarnám og unnið er eftir samþættu verkefnamiðuðu þemanámi á miðstigi skólans. Unnið er eftir læsisstefnu skólans með áherslu á PALS og Byrjendalæsi.

Upplýsingar um skólastarfið í Hörðuvallaskóla, stefnu hans og helstu áherslur er að finna á heimasíðu skólans, www.horduvallaskoli.is .

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla í íþróttum og sundi á yngsta og miðstigi.
  • Kennsla í teymi íþróttakennara.
  • Samstarf við foreldra um nám og velferð nemenda.
  • Samstarf innan skólans að faglegum málefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í íþróttum og sundi.
  • Einlægur áhugi á að vinna með börnum og nálgast þau út frá ólíkum þörfum.
  • Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi.
  • Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Stundvísi og áreiðanleiki.
  • Mjög góð íslenskukunnátta bæði í töluðu máli og rituðu.
Fríðindi í starfi

Starfsmenn Kópavogsbæjar fá frían aðgang í sundlaugar bæjarins

Advertisement published29. April 2026
Application deadline13. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Baugakór 38, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags