

Iðjuþjálfi
Viltu verða hluti af samheldnum og metnaðarfullum hópi iðjuþjálfa sem starfa á Reykjalundi?
Laus er til umsóknar staða iðjuþjálfa á Reykjalundi endurhæfingu ehf. Starfshlutfall er samkomulagsatriði en æskilegt er að viðkomandi geti hafið starf sem fyrst.
Á Reykjalundi starfa iðjuþjálfar í átta þverfaglegum meðferðarteymum þar sem áhersla er lögð er áhersla á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn.
Í þverfaglegum teymum á Reykjalundi starfa auk iðjuþjálfa, sjúkraþjálfarar, sálfræðingar, næringarfræðingar, félagsráðgjafar, íþróttafræðingar, sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar og læknar.
Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt og sundlaug.
Hæfniskröfur:
- Íslenskt starfsleyfi gefið út af Embætti landlæknis.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og samstarfi.
- Áhugi, metnaður og sjálfstæði í starfi.
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og SFV (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu), auk gildandi stofnanasamnings Iðjuþjálfafélags Íslands og Reykjalundar.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum, starfsleyfi og sakavottorði. Umsókn fylgi einnig kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.
Upplýsingar um starfið veita Bára Sigurðardóttir fagstjóri iðjuþjálfa [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri [email protected]
Öllum umsóknum verður svarað.
Upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is
Icelandic


