
Álfhólsskóli
Álfhólsskóli er heildstæðu grunnskóli með nemendur í 1. - 10. bekk. Innan skólans er stórt alþjóðanámsver og sérdeild fyrir einhverfa nemendur. Skólinn er starfrækur í tveimur húsum, í Digranesi, Álfhólsvegi 100 og Hjalla, Álfhólsvegi 120. Íþróttir eru kenndar í Íþróttahúsinu Digranesi og sund í Sundlaug Kópavogs.
Í Álfhólsskóla er skapandi starf með fjölbreyttum kennsluháttum og nám við hæfi hvers og eins óháð menningarlegum bakgrunni. Skólinn leggur áherslu á velferð nemandans og að hver og einn nái að eflast og þroskast út frá eigin forsendum.
Álfhólsskóli leggur áherslu á gott og náið samstarfs við foreldra um velferð nemenda. Hlutverk Álfhólsskóla er að búa nemendur undir þátttöku í lýðræðissamfélagi í námsumhverfi sem stuðlar að sjálfstæði og þroska einstaklingsins.
Álfhólsskóli hefur þrjú gildi að leiðarljósi en þau eru menntun, sjálfstæði og ánægja.

Húsvörður í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli óskar eftir húsverði í 100% starf
Í Álfhólsskóla eru um 540 nemendur í 1.-10. bekk og um 120 starfsmenn. Skólinn byggir á langri sögu um framsækið og árangursríkt skólastarf.
Einkunnarorð skólans eru : menntun - sjálfstæði - ánægja.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur daglegt eftirlit með húsnæði og þrifum skólans, húsgögnum, áhöldum og lóð.
- Sér um að opna skóla í upphafi dags og gengur frá í lok dags.
- Sinnir daglegri verkstjórn skólaliða og skipuleggur störf þeirra við þrif, gæslu, aðstoð í mötuneyti/matsal og önnur fagleg störf.
- Sinnir minniháttar viðhaldi á eignum og búnaði, tilkynnir um frekari viðhaldsþörf, jafnt innanhúss sem utan og á samskipti við eignasvið Kópavogsbæjar.
- Sér um að hiti, lýsing og loftræsting sé fullnægjandi og að öll kerfi starfi rétt.
- Stillir upp fyrir og aðstoðar við stærri fundi eða viðburði í skólanum.
- Sér um að sorp sé flokkað, fjarlægt og lóðir þrifalegar.
- Sér um snjómokstur og hálkueyðingu við innganga skólans sem og samskipti við þjónustumiðstöð vegna moksturs/hálkueyðingar á stærri svæðum.
- Sér um innkaup á hreinlætis- og rekstrarvörum og öðru sem snýr að viðhaldi húss og búnaðar.
- Sinnir ýmsum útréttingum fyrir skólann.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun er kostur.
- Mjög góð almenn verk- og tæknikunnátta.
- Reynsla og þekking sem nýtist í starfi.
- Reynsla af stjórnun verkefna og starfsmannahópa æskileg.
- Þjónustulipurð og góð hæfni í samskiptum við börn og fullorðna.
- Reglusemi, samviskusemi, snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki.
- Góð skipulagshæfni og sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
- Almenn ökuréttindi og þarf að hafa bíl til umráða. Greitt er kílómetragjald vegna sendiferða samkvæmt kjarasamningi.
- Góð færni í íslensku, töluðu og rituðu máli.
Fríðindi í starfi
Allt starfsfólk Kópavogsbæjar fá frían aðgang í sundlaugar bæjarins.
Advertisement published19. October 2026
Application deadline2. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Álfhólsvegur 120, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (11)

Fagstjóri fasteigna
Grundarheimilin

Starfsmaður í ræstingar
Ívera hf.

Uppsetning og viðhald á sjálfvirkum búnaði.
Járn og Gler hf

Handlaginn Verkamaður / Workshop fabrication
Glerverk

Starfsmaður Íþróttafélagsins Þingeyings
Íþróttafélagið Þingeyingur

Húsasmiður
Bolur Byggingafélag ehf

Verkefnastjóri í fasteignum og viðhaldi
Landsnet hf.

Starfsmaður við svellagerð og húsvörslu
Skautahöllin Akureyri

Verkstjóri í framleiðslu á forsteyptum einingum - faglærður smiður
Einingaverksmiðjan

Kvenkyns starfsmaður íþróttamiðstöðvar Norðfjarðar
Fjarðabyggð

RE Smiðir ehf óska eftir smiðum
RE smiðir ehf.