Landsbankinn
Landsbankinn
Landsbankinn

Húsvörður

Við auglýsum laust starf húsvarðar í Landsbankanum í Reykjastræti. Húsvörður ber ábyrgð á daglegu viðhaldi, umhirðu og öryggi fasteigna og lóðar. Starfið felur í sér að tryggja að húsnæði sé hreint, vel við haldið og að búnaður virki sem skyldi. Húsvörður er oft fyrsti tengiliður við starfsmenn og gesti og gegnir lykilhlutverki í þjónustu og samskiptum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegt eftirlit með húsnæði, lóð og búnaði.
  • Viðhald og smærri viðgerðir á húsbúnaði, rafmagns- og vatnskerfum.
  • Móttaka og fylgd verktaka við viðgerðir og framkvæmdir.
  • Umsjón með sorphirðu og endurvinnslu.
  • Tryggja öryggi og aðgengi, t.d. með reglulegu eftirliti með brunavörnum og læsingum.
  • Samskipti við starfsmenn og gesti.
  • Úrlausn fjölbreyttra verkefna sem upp koma í daglegum rekstri.
  • Ýmis önnur tilfallandi verkefni sem starfsmanni eru falin.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af viðhaldi og almennri húsumsjón er kostur.
  • Grunnþekking á rafmagns-, pípulagna- og byggingarkerfum.
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund.
  • Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Líkamleg geta til að sinna verkum sem krefjast hreyfingar og burðar.
Advertisement published31. March 2026
Application deadline21. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Reykjastræti 6
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relations
Work environment
Professions
Job Tags