
RÚV
RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla. Öflugt og samhent starfsfólk skoðar samfélagið með gagnrýnum hætti, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar.

Húsvörður
RÚV leitar að ábyrgum og þjónustulunduðum húsverði. Starfið felur í sér eftirlit með Útvarpshúsinu og lóð þess ásamt því að tryggja að öllum öryggiskröfum sem fylgt í samræmi við reglur RÚV. Í starfinu felst einnig þjónusta og aðstoð við starfsfólk, gesti, birgja, þjónustuaðila og verktaka. RÚV býður upp á lifandi starfsumhverfi þar sem þjónustulund, fagmennska og sjálfstæð vinnubrögð eru í fyrirrúmi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegri húsvörslu.
- Umsjón með öryggis- og aðgangskerfum.
- Umsjón með hús- og tækjabúnaði.
- Almennt viðhald, lagfæringar og þrif.
- Frumkvæði að umbótum í húsinu.
- Styðja við góða umgengni í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk.Önnur verkefni í samráði við yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun og reynsla af húsvörslu kostur.
- Reynsla af viðhaldi og framkvæmdum.
- Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni.
- Frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.
- Almenn tölvukunnátta og vilji til að tileinka sér nýja tækni.
- Reglusemi og stundvísi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sæmundur Gunnarsson, umsjónarmaður fasteigna [email protected].
Stefna RÚV er að þar starfi fjölbreyttur hópur starfsfólks. Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð aldri, kyni, uppruna eða fötlun.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku.
Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar 2026.
Advertisement published6. February 2026
Application deadline22. February 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
Building skills
Professions
Job Tags
Other jobs (2)

