Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Heimilislæknir - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH

Hefur þú áhuga á að vinna í þverfaglegu teymi?

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir heimilislækni til starfa í Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana. Teymið er í stöðugri þróun, því gefast mörg tækifæri til að þróa faglega sérþekkingu.

Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana sinnir einstaklingum, 18 ára og eldri með þroskahömlun og klínískan geðrænan vanda og/eða krefjandi hegðun. Skjólstæðingar teymisins hafa oft á tíðum annan fjölbreytilegan taugaþroska og/eða sjúkdóma. Áhersla er lögð á þverfaglegt starf og unnið er þvert á stofnanir heilbrigðis- og velferðarþjónustu á landsvísu.

Ef þú hefur áhuga á vinna í fjölbreytilegri samfélagsgeðþjónustu og í öflugri teymisvinnu, þar sem góður starfsandi ríkir, þá er þetta spennandi tækifæri.

Um er að ræða 30% ótímabundið starf og ráðið er í starfið frá 1. ágúst eða eftir nánara samkomulagið.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið sérfræðings í heimilislækningum er víðtækt og felst m.a. heilbrigðisskoðun skjólstæðinga, ráðgjöf með tilliti til heilsufarsþátta og eftirfylgni. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi. Um er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem hefur áhuga á að taka þátt í nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt lækningaleyfi

  • Sérfræðimenntun í heimilislækningum

  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð

  • Reynsla af kennslu er æskileg

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar fagstéttir og þátttaka í teymisvinnu

  • Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Íslenskukunnátta skilyrði

Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Tækifæri til sí- og endurmenntunar
Advertisement published12. June 2026
Application deadline30. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Vegmúli 3, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Planning
Work environment
Professions
Job Tags