Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Heilbrigðisgagnafræðingur - Heilsugæslan Glæsibæ

Heilsugæslan Glæsibæ leitar að jákvæðum og drífandi heilbrigðisgagnafræðingi til að koma til liðs við okkur. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. september nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Á Heilsugæslunni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á ritun og umsýslu sjúkragagna vegna skjólstæðinga og í samvinnu við annað samstarfsfólk
  • Sér um móttöku, skráningu, skönnun og meðferð gagna í sjúkraskrárkerfinu Sögu
  • Sinnir lyfjaendurnýjun í lyfjasíma og Heilsuveru
  • Kemur að flokkun og svörun fyrirspurna í Heilsuveru
  • Samskipti við skjólstæðinga, aðrar heilbrigðisstofnanir, tryggingarfélög, lögfræðinga og fleiri
  • Aðstoðar í móttöku eftir þörfum
  • Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nám í heilbrigðisgagnafræði 
  • Starfsleyfi frá Embætti landlæknis
  • Reynsla af ritarastarfi kostur
  • Þekking og reynsla af upplýsinga- og skjalastjórnun
  • Reynsla og þekking af Sögukerfi æskilegt
  • Reynsla af Heilsugátt kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar, rík þjónustulund og jákvætt hugafar
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta skilyrði
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn enskukunnáttu
Advertisement published28. May 2025
Application deadline16. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Álfheimar 74, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags