

Hefur þú þekkingu og reynslu af löggjöf á fjármálamarkaði?
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða öflugan lögfræðing í deild viðskiptahátta á sviði háttsemiseftirlits, sem er annað af tveimur eftirlitssviðum bankans.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem tækifæri gefst til að öðlast djúpa þekkingu á eftirliti með og greiningu á viðskiptaháttum á fjármálamarkaði.
Í viðskiptaháttum starfar öflugur hópur að fjölbreyttum verkefnum þvert á markaði. Deildin hefur eftirlit með viðskiptaháttum eftirlitsskyldra aðila, þ.m.t. fjárfestavernd og málefnum neytenda. Verkefnin snúa til dæmis að eftirliti með kröfum um veitingu fjárfestingarþjónustu og dreifingu vátryggingaafurða, s.s. vöruþróun og dreifingu, sölu og markaðssetningu, ráðstöfunum vegna hagsmunaárekstra, upplýsingagjöf til viðskiptavina og flokkun viðskiptavina. Deildin kemur einnig að umsóknum um starfsleyfi og gerð laga og reglna.
- Eftirlit með og greining á viðskiptaháttum á fjármálamarkaði.
- Lögfræðiráðgjöf í álitamálum tengdum viðskiptaháttum.
- Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi.
- Þátttaka í innra starfi Seðlabankans.
- Grunn- og meistaranám eða embættispróf í lögfræði.
- Þekking á stjórnsýslurétti og löggjöf á fjármálamarkaði.
- Reynsla af störfum hjá eftirlitsskyldum aðilum sem tengjast hlítni við löggjöf á fjármálamarkaði er kostur.
- Reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar er kostur.
- Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með öðrum.
- Frumkvæði, öguð vinnubrögð, greiningarhæfni, ábyrgð, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku










