
Grænni byggð leitar að framkvæmdastjóra
Grænni byggð er samstarfsvettvangur stofnaður árið 2010 til að efla umhverfisvitund og fræða, tengja og hvetja hagsmunaaðila í byggingargeiranum til þess að innleiða sjálfbærari vinnubrögð.
Við erum að leita að starfskrafti í fullt starf (100%) sem framkvæmdastjóra samtakanna.
Umsóknum með ferilskrá og kynningarbréfi skal skila í gegnum Alfreð eða á [email protected] fyrir 14. apríl nk.
Nánari upplýsingar veitir Katarzyna Jagodzińska ([email protected] eða 844 5519)
→ Umsjón með fjármálum og rekstri Grænni byggðar.
→ Skilgreina stefnu og sýn Grænni byggðar í samvinnu með stjórn Grænni Byggðar.
→ Vinna í nánu samstarfi við aðila Grænni Byggðar.
→ Leiða og samhæfa verkefni Grænnar byggðar, þar á meðal vinnuhópa, viðburði og gerð fræðsluefnis.
→ Leita eftir og koma á fót samstarfi við íslenska og erlenda hagsmunaaðila.
→ Skipuleggja viðburði samtakanna og taka þátt í viðburðumtengdum byggingariðnaði á Íslandi sem tengjast starfsemi samtakanna.
→ Kynningarstörf (t.d. útvega efni fyrir fréttabréfið okkar).
✔ Hafa lokið að minnsta kosti meistaraprófi í grein sem tengist starfsemi Grænni byggðar (arkitektúr, byggingarverkfræði, hringrásarhagkerfi, umhverfisskipulag, vistvænt byggt umhverfi, o.fl.).
✔ Reynsla af stjórnunarstörfum.
✔ Sveigjanleiki og góð samskiptahæfni.
✔ Góð þekking á rekstri fyrirtækja og hæfni til að beita þeirri þekkingu í daglegum verkefnum samtakanna
✔ Greinandi hugsun og hæfni til áætlunargerðar.
✔ Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni.
✔ Góð íslensku- og enskukunnátta.
Icelandic
English










