Akureyri
Akureyri
Akureyri

Glerárskóli: Starfsfólk í íþróttahúsi með stuðning

Í Glerárskóla á Akureyri eru lausar tvær 70% stöður starfsfólks í íþróttahúsi með stuðning. Ein staða fyrir karlmann og ein staða fyrir kvenmann. Ráðið verður í störfin frá 1. ágúst 2026 til 18. júní 2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Möguleiki er á starfi í frístund til viðbótar við starfið.

Frá 1. ágúst til og með 20. ágúst 2026 mun starfsfólk starfa að fullu í ágústfrístund.

Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði jákvæðs aga og Olweusar. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu. Glerárskóli er Erasmus+ vottaður skóli.

Glerárskóli er hnetulaus skóli.

Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is

Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingum sem eiga auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hafa mikinn metnað, eiga auðvelt með öll samskipti og sem leggja áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gæsla og stuðningur við nemendur í íþróttamannvirki og búningsklefum íþróttamannvirkis
  • Að fylgjast með samskiptum og taka samstundis á ágreiningi, áreitni og ofbeldi og vísa málum í réttan farveg, s.s. til kennara eða stjórnenda
  • Stuðningur við nemendur í íþróttatímum undir verkstjórn íþróttakennara í því skyni að stuðla að þátttöku, færni og sjálfstæði nemenda
  • Sinnir minniháttar meiðslum og óhöppum nemenda þegar þess þarf.
  • Leiðbeinir nemendum um framkomu og hegðun samkvæmt uppeldis- og agastefnu skólans
  • Situr fag-, samstarfs- og foreldrafundi eftir því sem við á
  • Að fylgja nemanda/nemendum í dags- og vettvangsferðir
  • Fylgd og eftirlit í styttri ferðum vegna skólastarfs
  • Umsjón og gæsla í kaffi- og matartíma
  • Frímínútnagæsla og almennt eftirlit með nemendum í skólahúsnæði
  • Önnur störf sem kennari og/eða stjórnandi felur viðkomandi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi á að starfa með börnum er skilyrði
  • Starfsreynsla innan skólakerfis er æskileg
  • Að geta unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði
  • Sveigjanleiki í starfi, stundvísi, jákvæðni og færni í samskiptum
  • Kunnátta í skyndihjálp er skilyrði
  • Samviskusemi og reglusemi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hæfni til að fylgja fyrirframgefnu skipulagi
  • Áhugi á að taka þátt í þróun skólastarfs og að taka að sér fjölbreytt verkefni
  • Ýmiskonar hæfileikar, menntun og/eða þekking sem getur auðgað skólastarfið
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samræmist starfinu
Advertisement published31. March 2026
Application deadline20. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Höfðahlíð
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Flexibility
Professions
Job Tags