Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Frístundaleiðbeinendur í félagsmiðstöðvar Reykjanesbæjar

Langar þig að starfa í lifandi og skemmtilegu umhverfi þar sem áhersla er lögð á þátttöku, vellíðan og jákvæð samskipti ungmenna?

Félagsmiðstöðvar Reykjanesbæjar leita að öflugum og áhugasömum frístundaleiðbeinendum til starfa. Um er að ræða störf í 20–50% starfshlutfalli, að mestu leyti síðdegis og á kvöldin. Starfið hentar vel með námi eða annarri vinnu.

Í félagsmiðstöðvum Reykjanesbæjar er lögð áhersla á faglegt og metnaðarfullt tómstundastarf fyrir ungmenni í 5.–10. bekk með það að markmiði að skapa öruggt, skemmtilegt og hvetjandi umhverfi.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að starfsfólk endurspegli þau í sínum störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiðbeina og styðja ungmenni í daglegu starfi félagsmiðstöðvar
  • Skipuleggja og taka þátt í fjölbreyttu hópastarfi, viðburðum og verkefnum
  • Skapa jákvætt, öruggt og hvetjandi umhverfi
  • Efla þátttöku, félagsfærni og virk samskipti ungmenna
  • Taka þátt í þróun starfsins og samstarfi við annað starfsfólk
  • Samskipti við forsjáraðila eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af félagsmiðstöðva-, íþrótta- eða tómstundastarfi
  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. tómstunda- og félagsmálafræði, uppeldisfræði eða sambærilegt
  • Reynsla af skipulagningu hópastarfs, viðburða eða verkefna
  • Námskeið eða þjálfun sem tengist ungmennastarfi
  • Góð tölvufærni og vilji til að tileinka sér nýja tækni
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
  • Frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Hæfni til að skapa öruggt og jákvætt umhverfi fyrir ungmenni
  • Góð íslenskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
  • Tungumálakunnátta umfram íslensku kostur
  • Hreint sakavottorð skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Bókasafnskort
  • Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
  • Gjaldfrjáls aðgangur í sund
  • Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Advertisement published1. June 2026
Application deadline8. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Hafnargata 88, 230 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags