
Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands
Brunabótafélag Íslands hefur starfað í 110 ár og á sér langa og rótgróna sögu í íslensku samfélagi. Félagið var stofnað á fyrstu árum viðskiptafrelsis til að sinna brunatryggingum húseigna og þróaðist síðar í öflugt vátrygginga- og eignarhaldsfélag. Árið 1994 var starfsemin færð í núverandi form sem Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands (EBÍ) með lögum 68/1994, þar sem fulltrúaráð, skipað af sveitarstjórnum, fer með stjórnunar- og fjárhagsleg völd. Félagið er í dag sjálfstætt en hlutverk EBÍ er að tryggja vandaða stjórnun, ábyrga eignastýringu og traustan rekstur í samræmi við lög, reglur og samþykktir félagsins. Í nánu samstarfi við sveitarfélög er markmið félagsins að standa vörð um og ávaxta fjármuni félagsins, vera traustur bakhjarl í forvarnarstarfi í brunamálum og styðja við önnur samfélagslega mikilvæg verkefni.

Framkvæmdastjóri
Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands (EBÍ) leitar að öflugum og ábyrgum framkvæmdastjóra til að leiða starfsemi félagsins. Um er að ræða lykilhlutverk með mikla ábyrgð á rekstri, fjármálum og samskiptum við fjölbreytta hagsmunaaðila. Starfshlutfall er sveigjanlegt og getur verið allt að 100% eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur EBÍ í samræmi við lög, reglur og samþykktir
- Undirbúningur og framkvæmd ákvarðana stjórnar
- Fjármálastjórnun, fjárhagsáætlanagerð og reikningshald
- Yfirumsjón með eignastýringu og samskipti við eignastýringaraðila
- Undirbúningur stjórnarfunda, fulltrúaráðsfunda og aðalfunda
- Umsjón með úthlutunum, styrkjum og forvarnarverkefnum
- Samskipti við sveitarfélög og aðra samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af stjórnun, fjármálum, reikningshaldi og rekstri
- Góð þekking á fjárfestingum og eignastýringu er kostur
- Skipulögð, fagleg og sjálfstæð vinnubrögð
- Framúrskarandi samskipta- og greiningarhæfni
- Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli
- Reynsla af samskiptum við sveitastjórnir er kostur
Advertisement published23. April 2026
Application deadline17. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Fjármálastjóri
Sveitarfélagið Skagafjörður

Framkvæmdastjóri Innanlandssviðs – Eimskip
Eimskip

Viðskiptastjóri SaaS lausna
Viridi ehf.

Forstöðumaður Dalslaugar
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar

Viltu stýra stærstu jarðhitaauðlindum Íslands?
Orkuveitan

Fjármálastjóri
SOS Barnaþorpin

Forstöðumaður þjónustu og þróunar
Akureyri

Fjármálastjóri
Alfreð

Forstöðumaður íþróttamannvirkja
Borgarbyggð

Hótelstjóri - Hótel Kea
Kea Hótelrekstur ehf

Forstöðumaður stafrænnar þróunar og upplýsingatækni
Vínbúðin

Sviðsstjóri náms- og kennsluþjónustu
Háskólinn á Akureyri