

Forstöðumaður stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fullorðið fatlað fólk
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar á velferðarsviði Kópavogsbæjar auglýsir laust til umsóknar starf forstöðumanns stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fullorðið fatlað fólk.
Starfið felur í sér daglega stjórnun, skipulag og eftirfylgd sértækrar stoðþjónustu við fatlað fólk í samræmi við mat á stuðningsþörf, þjónustuáætlanir, ákvarðanir sveitarfélagsins og markmið þjónustunnar hverju sinni. Í starfinu felst fagleg umgjörð þjónustunnar, mannauðstengd verkefni, samskipti við notendur og aðstandendur í samráði við notendur, samstarf við aðrar þjónustueiningar og samþætting þjónustu þegar við á.
Um er að ræða nýtt og spennandi starf í mótun. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með reynslu af því að stýra eða skipuleggja stoð- og stuðningsþjónustu til að taka þátt í móta starfsemina og leiða breytingar.
- Stuðlar að sjálfstæðu lífi, virkri samfélagsþátttöku, sjálfræði og lífsgæðum notenda í samræmi við réttindamiðaða þjónustu og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
- Hefur umsjón með gerð, framkvæmd og endurskoðun þjónustuáætlana, eftir því sem við á, og tryggir markvissa eftirfylgd og skráningu.
- Skipuleggur, samhæfir og metur þjónustu í samvinnu við notendur, aðstandendur eftir atvikum, ráðgjafa, heimahjúkrun og aðra samstarfsaðila.
- Skipuleggur vinnutíma, viðveru og vaktafyrirkomulag starfsfólks, eftir því sem við á, og tryggir að mönnun taki mið af þörfum þjónustunnar og fjárheimildum.
- Heldur reglulega starfsmannafundi, þjónustufundi og aðra samráðsfundi og tryggir að upplýsingagjöf, skráning og eftirfylgd sé skýr.
- Vinnur að gæðamálum, öryggi, áhættumati, umbótum og samræmdu verklagi í þjónustunni.
- Sinnir öðrum verkefnum sem yfirmaður felur forstöðumanni og samræmast hlutverki starfsins.
- Háskólamenntun á grunnstigi sem nýtist í starfi, svo sem á sviði félagsráðgjafar, þroskaþjálfunar, sálfræði eða sambærileg menntun.
- Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
- Reynsla af stjórnun, skipulagningu og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk.
- Þekking á lögum, reglum og verklagi sem gilda um þjónustu við fatlað fólk, félagsþjónustu sveitarfélaga, stjórnsýslu, persónuvernd og vinnuvernd.
- Hæfni til að leiða teymi, skipuleggja þjónustu, forgangsraða verkefnum, leysa úr flóknum málum og vinna með ólíkum samstarfsaðilum.
- Góð færni í samskiptum, skráningu, upplýsingamiðlun og notkun stafrænna kerfa í opinberri stjórnsýslu.
- Fagleg dómgreind, frumkvæði, ábyrgðarkennd og skýr sýn á réttindamiðaða og einstaklingsmiðaða þjónustu.
- Góð íslensku- og enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
Icelandic
English










