Arion banki
Arion banki
Arion banki

Forritarar á upplýsingatæknisvið

Arion leitar að einstaklingum með brennandi áhuga á að ganga til liðs við öflug teymi sem vinna að framúrskarandi lausnum sem snerta líf viðskiptavina á hverjum degi. Við leitum að starfsfólki sem býr yfir frumkvæði og hefur löngun til að vinna í nútímalegu og fjölbreyttu tækniumhverfi. Arion leggur áherslu á að starfsfólk vaxi í starfi og hafi tækifæri við að bæta stöðugt við sig nýrri þekkingu.

Við leitum að forriturum sem skilgreina sig sem backend eða full-stack. Hugbúnaðarþróun Arion vinnur m.a. með .NET, MS SQL, Redis, RabbitMQ, NodeJS og React, til útgáfu á Windows eða  Linux, hýst í skýjasamhæfðu umhverfi innan eigin gagnavera eða í skýi, með áherslu á örar útgáfur og sjálfvirknivæðingu á öllum stigum lífsferils.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun á hugbúnaði í samræmi við greiningu og hönnun 

  • Kóðarýni hjá öðrum forriturum 

  • Greining á villum og úrlausn þeirra 

  • Smíði og framkvæmd sjálfvirkra prófana sem og sjálfvirkra útgáfuferla 

  • Gerð tæknilýsinga og rekstrarhandbóka 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði tölvunar-, kerfis-, verkfræði eða starfsreynsla sem nýtist í starfi 

  • Þekking á.NET umhverfi, Git og MS SQL æskileg 

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt með áherslu á  nákvæmni 

  • Góðir samskiptahæfileikar og áhugi á teymisvinnu 

  • Innsýn í greiðsluvirkni, greiðslukort og fjármálastarfsemi kostur. 

Advertisement published3. February 2026
Application deadline12. February 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Backend developmentPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags