

Forfallakennari óskast í Kóraskóla
Í Kóraskóla eru um 230 nemendur í 8. - 10. árgangi og um 40 starfsmenn. Í skólanum er lögð áhersla á skapandi og framsækið skólastarf og eru allir nemendur skólans með spjaldtölvur. Kennt er í opnum rýmum og teymiskennsla er ríkjandi. Í námi og kennslu er rík áhersla á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti.
Kóraskóli leitar að kennara sem til að sinna tilfallandi forfallakennslu í vetur í öllum árgöngum og í öllum námsgreinum.
Annast forfallakennslu í samráði við skólastjórnendur og aðra kennara.
Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
Þekking og áhugi á kennslu og uppeldisfræði.
Einlægur áhugi á að vinna með ungmennum.
Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
Stundvísi og áreiðanleiki.
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
Allir starfsmenn Kópavogsbæjar fá frítt í sundlaugar bæjarins.
Icelandic










