
Tónlistarskólinn á Akranesi
Hlutverk Tónlistarskólans á Akranesi er að stuðla að öflugu tónlistarlífi, jafnframt því að vinna að aukinni hæfni, þekkingu og þroska einstaklinga. Áhersla skal lögð á að skólinn þjóni öllum þeim sem eftir tónlistarnámi sækjast án tillits til aldurs, ennfremur ber skólanum að taka tillit til margbreytilegra áhugasviða nemenda, getu þeirra og þroska. Tónlistarskólinn á Akranesi býr við góðan aðbúnað til kennslu að Dalbraut 1 og býður upp á fjölbreytileika í skólastarfinu.
Fiðlukennari
Tónlistarskólinn á Akranesi auglýsir eftir tónlistarkennara í 50% starf. Um er að ræða afleysingu í eitt ár.
Starfið felst í að kenna á fiðlu, suzuki kennslu og hópkennslu á fiðlu og/eða í forskóla.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í að kenna á fiðlu, suzuki kennslu og hópkennslu á fiðlu og/eða í forskóla
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntunarkröfur:
Háskólamenntun í fiðluleik eða sambærilegt próf og Suzuki kennsluréttindi
Hæfniskröfur:
- Faglegur metnaður, reynsla og áhugi á að starfa sem tónlistarkennari
- Áhugi á starfsþróun og fjölbreytni í skólastarfi
- Virðing og lipurð í mannlegum samskiptum við nemendur, forráðafólk og samstarfsfólk
- Háttvísi og stundvísi
- Viðkomandi þarf að skila inn sakavottorði
Advertisement published6. June 2025
Application deadline20. June 2025
Language skills

Required
Location
Dalbraut 1, 300 Akranesi
Type of work
Skills
ViolinClean criminal recordTeachingHuman relationsIndependence
Professions
Job Tags
Other jobs (2)