Ferðaland
Ferðaland
Ferðaland

FERÐASKRIFSTOFA - Utanlandsferðir

Skapandi vinnustaður í utanlandsferðum

Hefurðu áhuga á að vinna í lifandi og skapandi umhverfi þar sem enginn vinnudagur er eins og þar sem áhersla er lögð á gleði, sveigjanleika og framúrskarandi þjónustu í skipulagningu utanlandsferða?

Um vinnustaðinn:

Í Ferðalandi starfar samhent og öflugt teymi sem hefur brennandi áhuga á að skapa einstakar ferðaupplifanir. Við leggjum ríka áherslu á fagmennsku, með það að markmiði að tryggja ánægju viðskiptavina okkar og uppfylla ferðadrauma þeirra um allan heim.

Við sérsníðum gæðaferðir fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina – allt frá viðburða- og árshátíðarferðum fyrir fyrirtæki, útskriftaferðum fyrir lífsglaða nemendur, til sólarlanda- og ævintýraferða um Evrópu, Afríku, Asíu og víðar. Við erum ekki hefðbundin ferðaskrifstofa, við leitum óhefðbundinna leiða, nýtum nýjustu tækni og kynnum reglulega nýjar og spennandi leiðir sem oft hafa ekki verið í boði áður.

Verkefnin hjá okkur eru fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg, enginn dagur er eins, og á hverjum degi bíða nýjar áskoranir og tækifæri til að vaxa og læra.

Andi og menning:

Við leggjum áherslu á jákvætt, lausnamiðað og sveigjanlegt starfsumhverfi þar sem traust og samvinna eru lykilatriði. Þverfaglegt samstarf er stór hluti af okkar menningu, sérstaklega á álagstímabilum stöndum við saman sem ein liðsheild.

Við trúum því að gott andrúmsloft og gleði í starfi skipti höfuðmáli. Þess vegna gefum við okkur rými til að gera dagamun, njóta samveru og förum reglulega í ferðir erlendis saman.

Í Ferðalandi sköpum við rými fyrir einstaklinga til að blómstra, hér færðu tækifæri til að þróa hæfileika þína, læra nýja hluti og vaxa í starfi með stuðningi reynslumikils og styðjandi teymis.

Ferðaland:
Ferðaland samanstendur af þremur vörumerkjum í ferðaþjónustunni: Ferðaland, Kompaníferðir og Indígó. Hjá Ferðalandi sérhæfum við okkur í einstaklingsferðum og sérsniðnum hópaferðum. Hjá Kompaníferðum sérhæfum við okkur í viðburða og árshátíðarferðum fyrirtækja erlendis og hjá Indígó sérhæfum við okkur í námsferðum, útskriftarferðum og sérsniðnum hópaferðum fyrir ungt fólk.

Sendu okkur umsókn og vertu hluti af okkar frábæra teymi!

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af ferðaþjónustu er mikill kostur.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er nauðsynleg.
  • Áhugi og reynsla af ferðalögum er kostur.
  • Góð almenn tölvukunnátta - "Office" pakkinn.
  • Mjög góð skipulagshæfni og lausnamiðuð manneskja.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Góð framkoma, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
Fríðindi í starfi
  • Starfið felur í sér ferðalög erlendis
Advertisement published6. June 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Expert
Location
Skútuvogur 1b, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.SalesPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags