
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Félagsráðgjafi í deild barna- og fjölskyldna
Barna-og fjölskyldudeild óskar eftir öflugum og metnaðarfullum félagsráðgjafa með áhuga og þekkingu á að vinna með börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra.
Verkefni félagsráðgjafa taka til almennrar og sértækrar félags- og velferðarþjónustu, félagsráðgjafi er hluti af þverfaglegu teymi sem sinnir ráðgjöf og stuðningi við börn og fjölskyldur þeirra í deild barna-og fjölskyldumála.
Um er að ræða tímabundið starf til eins árs með möguleika á framlengingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Félagsráðgjafi veitir börnum og fjölskyldum þeirra ráðgjöf s.s. félagslegra aðstæðna, uppeldis barna, fjölmenningar, veikinda og fötlunar.
- Félagsráðgjafi veitir einstaklingsmiðaðan stuðning sem miðar að því að tryggja þátttöku innan og utan heimilis, auka lífsgæði og virkni í samfélaginu eftir því sem við á og þörf krefur. Veitir ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns.
- Vinnur mat á þjónustuþörfum barns og fjölskyldu þess.
- Gerir stuðningsáætlun og leggur mat á árangur.
- Ber ábyrgð á málstjórn í stuðningsteymum þar með talið ráðgjöf og upplýsingar um samþættingu þjónustu. Samstarf og samvinna við lykilstofnanir og hagsmunasamtök í málefnum barna.
- Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsréttindi í félagsráðgjöf
- Þekking og reynsla af ráðgjöf við fjölskyldur.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi og reynsla á þverfaglegri teymisvinnu.
- Góð íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum matsramma
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Þekking og reynsla af starfi á sviði velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar eða öðru sveitarfélagi er kostur. Þekking eða reynsla af því að starfa með fólki af erlendum uppruna er kostur.
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuviku
- Fjölskylduvænan vinnustað.
- Sund -og menningarkort Reykjavíkurborgar
Advertisement published13. August 2026
Application deadline27. August 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
Social worker
Professions
Job Tags
Other jobs (4)

Íbúðakjarninn Kleppsvegi óskar eftir stuðningsfulltrúa
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Þroskaþjálfi í Virknimiðstöð Reykjavíkur
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Virkniþjálfi í BORGUM, félags og menningamiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Leiðtogi listasmiðju fyrir fatlað fólk
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Similar jobs (7)

Icekorea leitar að sölumanneskju / söluráðgjafa
Icekorea

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær

Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á legudeild lyndisraskana Kleppi
Landspítali

Ráðgjafi á Vesturlandi
Vinnumálastofnun

Þjónustufulltrúi
Bayern líf

Spennandi starf í þjónustukjarna fyrir geðfatlaða
Mosfellsbær

Hönnuður á byggingadeild
Límtré Vírnet ehf