Faxaflóahafnir sf.
Faxaflóahafnir sf.

Faxaflóahafnir leita að matráð hjá viðhaldsverkstæði Faxaflóahafna

Helstu verkefni
Sér um kaffi starfsfólks og framreiðslu á aðkeyptum hádegismat í mötuneyti.
Sér um frágang eftir máltíðir.
Annast reglulega ræstingu á húsnæði áhaldahúss, fyrir utan verkstæðisrými.
Annast matarpantanir.
Hefur umsjón með því að tæki og búnaður tengt mötuneyti og ræstingu áhaldahúss starfi eðlilega og lætur
yfirverkstjóra vita ef viðgerða/lagfæringa er þörf.
Annast önnur þau störf, sem viðkomandi kunna að vera falin af yfirmanni og falla innan eðlilegs starfsviðs hans

Kröfur til starfsins
Snyrtimennska.
Færni í samskiptum við fólk og fyrirtæki.

Faxaflóahafnir er stærsta höfn landsins þar sem starfa um 80 manns á
starfsstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík, á Akranesi, Grundartanga og í Borgarnesi.
Við viljum vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum en leggjum einnig áherslu
á þróun snjallra lausna og grænar hafnir.
Við leitum að fólki með góða hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði
og sjálfstæði í starfi.

Starfshlutfall er 60% og miðast við mætingu kl. 9.00 mánudag til fimmtudag.

Starfsmaðurinn mun hafa aðstöðu á viðhaldsverkstæði Faxaflóahafna sem er við Fiskislóð 12 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um störfin gefur J. Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri hafnarinnviða; [email protected]
Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna á netfangið [email protected], eigi síðar en sunnudaginn 24. maí n.k.

Advertisement published18. May 2026
Application deadline24. May 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Tryggvagata 17, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags