Tæknivit ehf.
Tæknivit ehf.
Tæknivit ehf.

Ert þú drífandi sölumaður með brennandi áhuga á tækni?

TÆKNIVIT leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að stýra sölu fyrirtækisins

Hjá Tæknivit leggjum við metnað í að veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf þegar kemur að sjálfsafgreiðslu og aðgangslausnum.

Við leitum nú að sölustjóra sem nýtur þess að loka samningum, er laginn við mannleg samskipti og brennur fyrir tæknilegum lausnum.

Um er að ræða framtíðarstarf

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bein sala og ráðgjöf til nýrra og núverandi viðskiptavina.

  • Greining á þörfum viðskiptavina og samsetning á tæknilausnum.

  • Gerð tilboða og eftirfylgni sölumála.

  • Greining tækifæra á markaði.

  • Viðhald viðskiptasambanda.

  • Þátttaka í markaðsstarfi og kynningum á vörulínum fyrirtækisins.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölustörfum: Reyndur sölumaður/stjóri sem veit hvað þarf til að ná árangri í sölu og býr yfir góðri sölutækni.

  • Tæknilæsi: Góð þekking á tölvubúnaði, rafbúnaði og nýjungum á markaðnum.

  • Samskiptahæfileikar: Á auðvelt með að útskýra flókna hluti á mannamáli.

  • Frumkvæði: Er sjálfstæður í vinnubrögðum og leitar stöðugt leiða til að bæta árangur.

Advertisement published30. March 2026
Application deadline18. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Rofabær 9, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags