Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Deildarstjóri í íbúðakjarna fyrir fólk með fatlanir

Velferðarsvið Kópavogsbæjar auglýsir eftir deildarstjóra í íbúðakjarna fyrir fólk með fatlanir.

Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi íbúðakjarnans og tekur þátt í faglegu starfi með yfirmanni og stjórnendateymi. Deildarstjóri hefur umsjón með framkvæmd þjónustu við íbúa og vinnur með þeim á grundvelli áætlana.

Starfið felur í sér víðtæk verkefni sem tryggja að íbúar fái viðeigandi, faglega og einstaklingsmiðaða þjónustu sem stuðlar að bættum lífsgæðum.

Um er að ræða fullt starf í blandaðri vaktavinnu, þó að mestu leyti skrifstofustörf á dagvinnutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með framkvæmd þjónustu og faglegri stefnu í samstarfi við forstöðumann.
  • Faglegur stuðningur við teymisstjóra og starfsfólk.
  • Skipulagning daglegra verkefna, vakta, þjálfunar og fræðslu starfsfólks.
  • Eftirlit með því að þjónusta, skráningar og verklag séu í samræmi við þjónustuáætlanir, verkferla og faglegar kröfur.
  • Umsjón með handbókum, verklýsingum, atvikaskráningum, tölfræði og greiningu gagna.
  • Þátttaka í þróun og umbótum á þjónustu í samræmi við lög, reglugerðir og faglega stefnu.
  • Umsjón með innkaupum fyrir skrifstofu og starfsaðstöðu.
  • Einstaklingsmiðaður stuðningur við íbúa í daglegu lífi, þar á meðal við athafnir daglegs lífs, fjármál og heilbrigðisþjónustu.
  • Samstarf og samskipti við íbúa, aðstandendur, starfsfólk, heilbrigðisstarfsfólk og aðra samstarfsaðila.
  • Afleysing forstöðumanns í fjarveru hans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á fyrsta stigi (BA/BS) í þroskaþjálfun eða önnur menntun sem gæti nýst í starfi.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki.
  • Þekking á leiðandi hugmyndafræði í þjónustu við fatlað fólk, þ.e. sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.
  • Þekking á lögum um þjónustu við fatlað fólk.
  • Reynsla af teymisvinnu og geta til að leiðbeina og þjálfa.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Ökuréttindi æskileg.
  • Hreint sakavottorð.
  • Gott líkamlegt ástand.
Fríðindi í starfi
  • Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar bæjarins.
Advertisement published11. August 2026
Application deadline1. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Physical fitnessPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.Working under pressure
Work environment
Professions
Job Tags