
Leikskólinn Holt
Leikskólinn Holt varð til við sameiningu Fellaborgar og Völvuborgar í ágúst 2010. Leikskólinn er staðsettur í tveim húsum, hlið við hlið í Völvufelli 7 og 9.
Í Stóra-Holti, Völvufelli7, eru eldri börnin til húsa. Þar eru þrjár deildar Sel, Bakki og Hóll. Börnin eru u.þ.b. 55 talsins á aldrinum 3-6 ára.
Í Litla-Holti, Völvufelli 9, eru yngri börnin staðsett. Þar eru þrjár deildar, Berg og Litla-Fell og Stóra-Fell. Börnin eru u.þ.b. 45 á aldrinum 1-3 ára.
Í starfinu er lögð áhersla á málörvun, umhverfismennt og fjölmenningu. Við erum samstarfsaðilar í þróunarverkefninu "Okkar mál" en það byggir á samstarfi um menningu, mál og læsi í Fellahverfi. Verkefnið fékk Hvatningarverðlaun Skóla- og frístundasviðs í maí 2013 og Orðsporið nú í febrúar. Að auki erum við að vinna með tannvernd, nýjar leiðir í foreldrasamstarfi og innleiðingu á kennslu með spjaldtölvum.
Einnig erum við í tilraunarverkefni með ungbarnadeild í vetur á yngstu deildinni.
Deildarstjóri - HOLT
Deildarstjóri - HOLT
Leikskólinn Holt auglýsir eftir deildarstjóra í fullt starf.
Holt er fimm deilda leikskóli, staðsettur í tveimur húsum (Stóra-Holt og Litla-Holt) í Völvufelli 7-9 í Breiðholti. Í starfinu er lögð áhersla á málörvun og fjölmenningu. Við erum samstarfsaðilar í verkefninu „Mál og læsi í Fellahverfi" og erum í miklu samstarfi í hverfinu um menningu, mál og læsi. Einnig erum við að vinna með tannvernd, að efla félagsfærni barna og Vináttuverkefnið um Blæ bangsa.
Um er að ræða 100% stöðu
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
- Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
- Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar
- Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
- Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu og samvinnu við aðra fagaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og/eða leyfisbréf leikskólakennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði, B2 að lágmarki samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
Fríðindi í starfi
- Forgangur fyrir barn í leikskóla í Reykjavík og afsláttur af gjöldum
- 36 stunda vinnuvika
- Heilsustyrkur
- Sundkort
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur
- Hádegismatur
Advertisement published14. October 2026
Application deadline12. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Völvufell 9, 111 Reykjavík
Völvufell 7, 111 Reykjavík
Type of work
Skills
ProactiveConscientiousIndependencePlanningTeam work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sérkennari /þroskaþjálfi/ uppeldismenntaður starfsmaður
Dalskóli

Leikskólakennari óskast í allt að 100% starf
Leikskólinn Ylur

Lausar stöður leikskólakennara eða leiðbeinanda
Leikskólinn Tjarnarskógur

Sérkennari/Þroskaþjálfi/Leikskólakennari - Leikskólinn Geislabaugur
Leikskólinn Geislabaugur

Snemmtæk íhlutun - Sérkennsla - Leikskólinn Reynisholt
Reykjavíkurborg: Skóla- og frístundasvið

Óskum eftir að ráða Leikskólakennara eða starfsmann/konu á leikskólann Vífilsholt í Garðabæ
Hjallastefnan

Viltu móta framtíðina í þjálfun flugleiðsöguþjónustu – leitum eftir kennsluráðgjafa
Avians

Lindaskóli óskar eftir stærðfræðikennara á unglingastig
Lindaskóli

Deildarstjóri
Leikskólinn Hof

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Furuskógur

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara í tímavinnu eða hlutastarf
Rjúpnahæð

Leikskólinn Rjúpnahæð óskar eftir leikskólakennara
Rjúpnahæð