Rafholt ehf.
Rafholt ehf.
Rafholt ehf.

Bókari

Rafholt óskar eftir að ráða drífandi, nákvæman og ábyrgðarfullan einstakling í starf bókara. Bókari sinnir daglegu bókhaldi félagsins í nánu samstarfi við aðalbókara og fjármálastjóra. 

Við leitum að einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og býr yfir sterkri þjónustulund og lausnamiðuðu hugarfari. Um er að ræða fullt starf hjá vaxandi og metnaðarfullu fyrirtæki þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, nákvæmni og skilvirkan fjármálarekstur. 

Rafholt er leiðandi fyrirtæki á sviði raflagna, fjarskipta, varaafls, rafstöðva og kælilausna. Hjá félaginu starfa um 170 manns og er það einn stærsti vinnuveitandi í rafverktöku á Íslandi. Við bjóðum upp á gott starfsumhverfi, góðan starfsanda og fjölbreytt tækifæri til starfsþróunar. Öflugt starfsmannafélag er starfandi og aðstaða starfsfólks til fyrirmyndar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg færsla bókhalds og afstemmingar
  • Verkbókhald og uppgjör verka
  • Bókun innkaupa, innflutningsskjala og birgðabókhald – samskipti við birgja, flutningsaðila og tollafgreiðslu
  • Sölureikningagerð
  • Vinna tengd uppgjörum og skýrslugerð
  • Þátttaka í umbótaverkefnum 
  • Önnur verkefni sem til falla eftir atvikum   
    Menntunar- og hæfniskröfur
    • Menntun og/eða haldbær reynsla sem nýtist í starfi  
    • Góð þekking og reynsla af bókhaldi og verkbókhaldi skilyrði
    • Þekking og reynsla af innflutningi vara og birgðabókhaldi mikill kostur
    • Þekking og reynsla af DK og Business Central bókhaldskerfi mikill kostur 
    • Góð færni í notkun Excel   
    • Góð greiningarhæfni og vandvirk vinnubrögð
    • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
    • Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og jákvætt við horf
    Advertisement published14. August 2026
    Application deadline30. August 2026
    Language skills
    IcelandicIcelandic
    Required
    Advanced
    EnglishEnglish
    Required
    Intermediate
    Location
    Smiðjuvegur 4B, 200 Kópavogur
    Type of work
    Professions
    Job Tags