Hnit Artelia
Hnit Artelia
Hnit Artelia

BIM teymið stækkar – tvær stöður í boði

Viltu taka þátt í að móta framtíðina í stafrænni hönnun? Við hjá Hnit Artelia erum að stækka og leitum að metnaðarfullum einstaklingum til að styrkja okkar stafrænu vegferð. Við leitum að fólki í tvö ólík en tengd hlutverk á sviði BIM og ACC (Autodesk Construction Cloud).

Helstu verkefni og ábyrgð

Hlutverkin sem um ræðir:

1. BIM Sérfræðingur (BIM Specialist)

    • Uppbygging, þróun og innleiðing BIM-ferla í takt við ISO 19650 og ISO 27001.
    • Umsjón með sameiginlegu gagnasvæði (CDE), uppsetning verkefnavefa, notendastýring og rýniferlar í ACC.
    • Veita hönnuðum og verkefnastjórum tæknilega ráðgjöf og stuðning.
    • Umsjón með stöðutöku verkefna (t.d. stöðu RFI og upplýsingaflæðis).
    • Þátttaka í þróunar- og nýsköpunarverkefnum tengdum stafrænum lausnum til að auka skilvirkni í hönnun.

2. BIM Hönnuður (BIM Modeler)

    • Samræming og umsýsla BIM-líkana í fjölbreyttum verkefnum.
    • Umsjón með gæðamálum líkana og árekstrargreiningum.
    • Vinna þétt með hönnuðum í Revit, ACC og öðrum BIM hugbúnaði, t.d. uppsetning módela, tengingar við skýjalausnir og umsjón með fjölskyldum og teiknirömmum.
    • Þátttaka í þróunar- og nýsköpunarverkefnum tengdum stafrænum lausnum til að auka skilvirkni í hönnun.
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingum sem

  • Hafa menntun við hæfi, t.d. í verkfræði, tæknifræði, byggingafræði, tækniteiknun, eða sérhæft BIM-nám.
  • Hafa góða þekkingu á BIM-hugbúnaði og skilning á aðferðafræði BIM og gagnaskiptum.
  • Búa yfir frumkvæði og vilja til að læra nýja hluti.
  • Hafa skipulögð og öguð vinnubrögð.
  • Búa yfir mikilli samskipta, skipulags- og samvinnuhæfni
  • Hafa jákvætt viðhorf, frumkvæði og lausnamiðaða nálgun
  • Búa yfir góðri kunnáttu í íslensku eða ensku; kunnátta á norðurlandatungumáli er kostur
Advertisement published15. May 2026
Application deadline1. June 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Háaleitisbraut 58-60 58R, 108 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags