

Bílstjóri á dagrútu DHL í Garðabæ
DHL Express Iceland ehf óskar eftir að ráða bílstjóra í 100% starfi í bílstjórateymi fyrirtækisins á starfsstöð að Miðhrauni 2, 210 Garðabæ.
Vinnutíminn er alla virka daga frá kl. 09:30 til 17:30 mánudaga til fimmtudags og á föstudögum frá kl. 09:30 til 16:45. Vinnutíminn breytist á haustin og verður 10:00 til 18:00 mánudaga til fimmtudags og á föstudögum frá 10:00 til 17:15.
Leitað er að metnaðarfullum, árangurdrifnum og sjálfstæðum einstakling með ríka þjónustulund sem er reiðubúinn að takast á við krefjandi verkefni í fjölbreyttu alþjóðlegu starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Afhenda og sækja sendingar til viðskiptavina
- Umsýsla og vinnsla með sendingar fyrir flutning
- Samskipti við viðskiptavini og samstarfsmenn í öðrum deildum
- Þátttaka í öðrum verkefnum innan deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Lipurð í samskiptum og góð þjónustulund
- Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
- Góð Íslensku- og enskukunnátta
- Gild ökuréttindi eru skilyrði fyrir ráðningu
- Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu
Fríðindi í starfi:
- Fæðisdagpeningar
- Árlegur lýðheilsustyrkur
- Merktur fatnaður
Við hvetjum öll sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
DHL Express á Íslandi er hluti af alþjóðlegri samsteypu Deutsche Post DHL sem starfar í 220 löndum og landsvæðum. DHL er alþjóðlegasta flutningarfyrirtækið í heiminum í dag og þjónustan byggist á hraðsendingum og fraktflutningum á milli landa og heimsálfa.
Á Íslandi erum við stolt af því að vera viðurkennd sem Framúrskarandi Fyrirtæki ásamt því að vera í topp sætum í Great Place To Work yfir bestu fyrirtæki ársins hér á landi. DHL Express á Íslandi samanstendur af fjölbreyttum hóp 110 alþjóðlegra sérfræðinga sem vinna markvisst við það að tengja saman fólk um allan heim.
English
Icelandic










