Apótekarinn
Apótekarinn
Apótekarinn

Apótekarinn Vallakór - Sala og þjónusta, hlutastarf

Okkur vantar starfsmann í framtíðarstarf í Vallakór.

Við leitum að skipulögðum og sjálfstæðum starfsmanni með ríka og góða þjónustulund í starf við sölu og þjónustu í apótekið okkar í Vallakór. Starfið felst í almennri ráðgjöf og sölu á lausasölum lyfjum og öðrum vörum verslunarinnar.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Almenn þjónusta og afgreiðslustörf
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi í apóteki er kostur
  • Rík þjónustulund og jákvæðni
  • Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði
  • Lágmarksaldur er 20 ára
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Vinnutími er frá 13-18 alla virka daga.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Amanda da Silva Cortes, Lyfsöluleyfishafi, á netfangið [email protected]

Um Apótekarann:

Apótekarinn er hluti af Lyf og heilsu en félagið rekur í dag 27 lyfjaverslanir undir merkjunum Lyf og heilsu, Apótekarinn, Garðsapótek og Apótek Hafnarfjarðar. Félagið rekur einnig 4 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, SA Lyfjaskömmtun og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu í um 175 stöðugildum.

Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.Félagið er á spennandi tímamótum með nýju eignarhaldi og munu leyfishafar taka virkan þátt í mótun félagsins til framtíðar.

Advertisement published8. April 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags