Tannlæknastofa Kópavogi
Tannlæknastofa Kópavogi
Tannlæknastofa Kópavogi

Aðstoðarmanneskja tannlæknis

Tannlæknastofa í Kópavogi leitar að aðstoðarmanneskju tannlæknis. Ef þú ert þjónustulundaður, jákvæður og drífandi einstaklingur sem hefur gaman að fjölbreyttum verkefnum þá hvetjum við þig til að sækja um.

Hvað felst í starfinu?

  • Þrif og sótthreinsun á tækjum og vinnusvæðum
  • Aðstoð við stól
  • Ábyrgð á birgðahaldi og pantanir á vörum
  • Símsvörun, tímabókanir og önnur verkefni í móttöku
  • Önnur tilfallandi verkefni

Ef áhugi er fyrir þá er einnig hægt að útvíkka verkefnin þannig að þau geri starfið þitt enn áhugaverðara.

Hverju leitum við að?

  • Heiðarleika
  • Nákvæmni og áreiðanleika í vinnubrögðum
  • Jákvæðu viðmóti
  • Frumkvæði
  • Íslenskukunnátta er skilyrði

Í boði er framtíðarstarf og góð vinnuaðstaða á vel búinni stofu. Vinnutími er frá 8:30 - 16:15 mánudaga til fimmtudaga og frá 8:30-12:30 á föstudögum. Æskilegt er að þú getir hafið störf 4. ágúst, en einnig er möguleiki á að hefja störf fyrir þann tíma.

Trúnaði er heitið vegna umsókna.

Umsóknarfrestur er til 11. maí.

Advertisement published23. April 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hamraborg 11, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags