
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin aðstoðar fatlað fólk og aðstandendur við það utanumhald og þá umsýslu sem fylgir því að hafa notendastýrða persónulega aðstoð. NPA miðstöðin veitir m.a. ráðgjöf, heldur fræðslunámskeið, greiðir aðstoðarfólki laun og sér um launatengd mál.
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónustuform sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og gerir fötluðu fólki kleift að ráða hvar það býr og með hverjum það býr. Fatlað fólk stýrir því hvernig aðstoðin er skipulögð, hvenær hún fer fram, hvar hún fer fram og hver veitir hana.
Persónulegt aðstoðarfólk aðstoðar NPA notendur við sitt daglega líf, svo það hafi sömu möguleika og ófatlað fólk.

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
Leitað er að hlýlegri, ábyrgri og traustri aðstoðarmanneskju til starfa með ungu barni sem þarf stuðning við daglegar athafnir, hreyfingu, leik og þátttöku.
Helstu verkefni:
- Aðstoð við daglegar athafnir og umönnun
- Leikur, samskipti og þroskandi samvera
- Aðstoð við hreyfingu og notkun hjálpar- og stoðtækja
- Að fylgja leiðbeiningum og fylgjast með líðan barnsins
- Samstarf og samskipti við foreldra
- Þrif í umhverfi barnsins, á hjálpartækjum og öðrum búnaði.
Leitað er að einstaklingi sem er áreiðanlegur, þolinmóður og á auðvelt með að fylgja leiðbeiningum.
Reynsla af umönnun barna eða sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði.
Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið skyndihjálparnámskeiði, en það er ekki skilyrði. Foreldrar veita leiðsögn um dagleg verkefni og þarfir barnsins. Önnur nauðsynleg fræðsla og þjálfun verður veitt af viðeigandi fagaðilum og þjónustuaðilum eftir því sem við á.
Leitað er að aðstoðarmanneskju á vaktir frá kl. 8:00–16:00, mánudaga til föstudaga.
Advertisement published15. October 2026
Application deadline31. October 2026
Language skills
No specific language requirements
Location
Akureyri
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags
Other jobs (4)
Similar jobs (12)

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarmaður forstjóra
Intellecta

Aðstoðarmaður á endurhæfingardeild - Hrafnista Hraunvangur
Hrafnista

Starfsmaður óskast á Ægisgrund
Garðabær

Aðstoðarmaður tannréttingasérfræðings
Teinar slf

Félagsliði í sértækri heimaþjónustu - Fjölskyldu- og barnamálasvið
Hafnarfjarðarbær

AÐSTOÐARMAÐUR/KONA TANNLÆKNIS
Tannréttingastofa Gísla E Árnasonar

Starfsmenn í heimaþjónustu í Fjarðabyggð
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í hlutastarf
NPA miðstöðin

NPA aðstoðarkona í fullt starf!
Forréttindi

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Aðstoð á tannlæknastofu
Kjartan Gylfason ehf