Orkuveitan
Orkuveitan
Orkuveitan

Aðalbókari Carbfix

Við leitum að metnaðarfullri og lausnamiðaðri manneskju í stöðu aðalbókara Carbfix. Starfið krefst yfirgripsmikillar reynslu í reikningshaldi, uppgjörum og gerð ársreikninga og veitir einstakt tækifæri til að hafa áhrif á vöxt og þróun fyrirtækis í fremstu röð á sviði kolefnisbindingar.

Aðalbókari gegnir lykilhlutverki í að tryggja rétta og faglega meðhöndlun fjármála Carbfix og tengdra eininga (Coda Terminal og Carbfix USA) ásamt því að tryggja að starfsemin uppfylli sett lög, reglur og staðla.

Um er að ræða starf í teymi Reikningshalds Orkuveitunnar, en með skýra ábyrgð á fjárhagslegum þáttum Carbfix.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón og ábyrgð á fjárhags- og verkbókhaldi Carbfix
  • Uppgjör og kynningar á mánaðar-, ársfjórðungs- og ársgrundvelli.
  • Yfirsýn yfir reikningsskil og samræmi við lög, reglur og alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS).
  • Samskipti við endurskoðendur, skattayfirvöld og erlenda samstarfsaðila.
  • Þátttaka í þróun ferla og verklags, m.a. skýrslugerð og gagnavinnslu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Yfirgripsmikil reynsla af fjárhagsbókhaldi og uppgjörsvinnu, helst í alþjóðlegu umhverfi.
  • Þekking á fjárhags- og verkbókhaldi.
  • Góð færni í fjármálahugbúnaði, sérstaklega Business Central og Excel.
  • Þekking á innleiðingu ferla og stafrænni umbreytingu er æskileg.
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli.
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni í samskiptum við ólíka hagsmunaaðila.
  • Lausnamiðuð og heildræn nálgun, ásamt faglegum metnaði og vilja til umbóta.
  • Háskólamenntun í viðskiptafræði, reikningshaldi eða tengdu sviði.
Advertisement published6. June 2025
Application deadline20. June 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Very good
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags