Vélrás
Vélrás

Aðalbókari

VélRás í Hafnarfirði óskar eftir að ráða reynslumikinn einstaklings í starf aðalbókara.

Leitað er að einstaklingi sem hefur góða þekkingu á bókhaldi, getur unnið sjálfstætt og skipulega og hefur metnað fyrir því að tryggja vönduð vinnubrögð og áreiðanlegar fjárhagsupplýsingar.
Aðalbókari gegnir lykilhlutverki í fjármálum Vélrásar og hefur umsjón með daglegu bókhaldi, uppgjörum og afstemmingum. Starfið felur í sér náið samstarf við stjórnendur og aðra starfsmenn fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Yfirumsjón með fjárhags-, launa- og viðskiptabókhaldi
  • Yfirumsjón með afstemmingum, árshlutauppgjörum og gerð ársreikninga
  • Reikningagerð og innheimta
  • Umsjón með virðisaukaskatti og öðrum reglubundnum skilum
  • Undirbúningur gagna vegna ársuppgjörs og samskipti við endurskoðendur
  • Eftirfylgni með fjárhagsupplýsingum og stuðningur við stjórnendur
  • Þátttaka í þróun og umbótum á verkferlum á sviði fjármála og bókhalds

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði bókhalds, reikningshalds eða viðskipta
  • Góð reynsla af bókhaldi og uppgjörsvinnu
  • Þekking og reynsla af dk bókhaldskerfi og almenn tæknikunnátta er kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta, sérstaklega í Excel
  • Greiningarhæfni og nákvæmni
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Um VélRás:
VélRás ehf. er vélaverkstæði sem hefur sérhæft sig í þjónustu við eigendur vinnuvéla og vörubíla á umliðnum árum. Starfsmenn fyrirtækisins búa yfir áralangri og sérhæfðri reynslu til að fást við flest þau verkefni sem koma hjá viðskipvinum okkar. Vélrás hefur yfir að ráða 5.000 m2 vel útbúnu verkstæði ásamt sérútbúnum þjónustubílum til að veita fulla þjónustu á vettvangi hvar á landi sem er.
VélRás er systurfélag Vélanaust og Véltinda og er staðsett í Hafnarfirði, hátt í 100 manns starfa hjá félaginu og tengdum félögum.

Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).

Advertisement published10. September 2026
Application deadline23. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Álhella 4, 221 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReconciliationPathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.Financial statementsPathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.BillingPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Write upPathCreated with Sketch.Business administratorPathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags