
Mímir - símenntun

Spænska 3 - fjarnám
Á þessu námskeiði tölum við enn meiri spænsku!
Þú heldur áfram að þjálfa skilning og talað mál og byggja upp orðaforða og málfræði á fjölbreyttan hátt.
Um námskeiðið
Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Það er ætlað þeim sem hafa grunn í spænsku eða hafa lokið spænsku 2.
Þú heldur áfram að byggja upp orðaforða og þjálfa málfræði á fjölbreyttan hátt en með sérstakri áherslu á skilning, talað mál og samskipti á spænsku.
Áherslur
- Að læra enn betur að tjá þig og eiga samskipti á spænsku
- Að byggja upp enn meiri orðaforða sem nýtist vel í daglegu lífi
- Að halda áfram að þjálfa málfræði á hagnýtan hátt
- Að dýpka skilning á menningu og lífsháttum spænskumælandi landa
- Við lok námskeiðsins muntu búa yfir aukinni færni til að eiga samskipti á spænsku og getu til að nota hagnýtan orðaforða af meira öryggi.
Starts
2. Nov 2026Type
RemoteShare
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Mímir - símenntun