Fjallaskóli Íslands
Fjallaskóli Íslands
Fjallaskóli Íslands

Landvarðanámskeið

Fjallaskólinn kennir námskeið í landvörslu á vorönn 2027 og hljóta þau sem standast námskeiðið landvarðaréttindi frá Náttúruverndarstofnun. Námskeiðið fer fram í Öræfum, umhverfis Skaftafell og Jökulsárlón.

Námskeiðið  skiptist í bóklegan hluta yfir önnina og vettvangshluta. Vettvangshluti námskeiðsins fer fram 13.-16. apríl 2027 í Skaftafelli, Öræfum.  Bóklegi hluti námskeiðsins hefst 11. janúar á netinu og lýkur 23.mars.  
 

Námskeiðið miðar að því að undirbúa þátttakendur undir fjölbreytt störf landvarða en landvarðanámskeið Fjallaskólans byggir á námskrá Náttúruverndarstofnunnar um landvarðanám. Námið spannar 110 kennslustundir og er blanda af fjarnámi og staðnámi.

Viðfangsefni námskeiðsins eru meðal annars:
  • Náttúrutúlkun og fræðsla
  • Stjórnsýsla í náttúruvernd
  • Loftslags- og jöklabreytingar
  • Samskiptafærni
  • Öryggismál í landvörslu
  • Verkleg vinnubrögð landvarða
Námskeiðið er kennt á íslensku en öll sem geta stundað nám á íslensku eru hvött til að sækja um. Nemendum er frjálst að skila heimaverkefnum á íslensku eða ensku og ekki er gerð krafa um að nemendur geti tjáð sig á íslensku.
 
Íris Ragnarsdóttir Pedersen er umsjónarkennari námskeiðsins en fjöldi sérfræðinga í náttúruvernd og landverðir koma að bæði verklegri og bóklegri kennslu á námskeiðinu. 
 

Skráning á námskeiðið er opin til 15. desember og er fólk tekið inn jafnóðum standist það forkröfur inn á námskeiðið.   Það eru takmörkuð pláss í boði og   hafa færri komist að en vilja á fyrri námskeið.

ATH. bóklegi hluti námskeiðsins hefst 11. janúar   á netinu og verklegi hlutinn er  13.-16.apríl í Öræfum/Skaftafelli.

Starts
11. Jan 2027
Type
On site / remote
Price
175,000 kr.
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories