Mímir - símenntun
Mímir - símenntun
Mímir - símenntun

Að lesa og skrifa á íslensku (A1.1) f. arabískum.

[Upplýsingar á íslensku fyrir neðan]

القراءة والكتابة باللغة الأيسلندية

تعد هذه الدورة بداية جيدة لبدء التعلم. الأيسلندية والتدريب القراءة و الكتابة. وكذلك إلى بناء الثقة

بالنفس لمواصلة التعلم

في هذه الدورة، ستتاح لك الفرصة لتعلم اللغة الأيسلندية بخطى متمهلة في بيئة تعليمية آمنة

وداعمة.

Að lesa og skrifa á íslensku (A1.1)

Námskeiðið er gott upphaf til að byrja að læra íslensku og þjálfa lestur og skrift. Einnig til að byggja upp sjálfstraust til að halda áfram að læra.

Á námskeiðinu færð þú tækifæri til að læra íslensku hægt og rólega í öruggu og styðjandi námsumhverfi.

Kennarinn talar arabísku 

Um námið

Námskeiðið Að lesa og skrifa á íslensku er sérsniðið fyrir þig sem ert byrjandi í íslensku, vilt læra hægar og þarft þjálfun í að lesa og skrifa latneska stafrófið. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að læra vel  íslenska stafrófið og þjálfa framburð auk þess að læra grunnorðaforða daglegs máls og einfalda setningagerð.

Á námskeiðinu er notað fjölbreytt efni og ólíkar leiðir til að æfa alla þætti tungumálanáms. Þessir þættir eru skilningur, lestur, skrift og talþjálfun með áherslu íslensku í daglegu lífi og sjálfsstyrkingu til að halda áfram að læra tungumálið.

Þjálfun í rafrænni færni er hluti af námskeiðinu þar sem þú færð upplýsingar um og tækifæri til að nota hagnýtar vefsíður og smáforrit með tölvum og snjallsímum. Fræðslu um íslenskt samfélag er fléttað inn í námskeiðið eftir því sem hentar hópnum.

Námskeiðið er kennt á íslensku og arabísku.

Að lesa og skrifa á íslensku er nám á fyrsta þrepi hæfniramma um íslenskt menntakerfi og er byrjendanámskeið í íslensku á forstigi og á stigi A1.1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum.

Á námskeiðinu er notað fjölbreytt námsefni og virk þátttaka nemenda til að tryggja árangursríkt og skemmtilegt nám í íslensku. Námsefnið Íslenska fyrir alla 1 er notað að hluta auk sérhæfðs efnis til þjálfunar í framburði, lestrar- og skriftarkennslu, myndefnis, leikja, spila, aukaefnis og rafrænna stoða af ýmsu tagi og Orð eru ævintýri – rafbók | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

 

Áherslur

  • Læra stafrófið og  framburð: Þú færð góðan grunn til að halda áfram að læra íslensku og þjálfun í íslenska hljóðkerfinu.
  • Þú byggir upp grunnorðaforða með því að nota myndir og orð á áhrifaríkan hátt.
  • Við leggjum áherslu á talþjálfun og þú æfir einfaldar og hagnýtar setningar.
  • Þú færð þjálfun í grunnatriðum í lestri og skrift einfaldra orða og setninga. Þú æfir einnig að skrifa einföld orð og grunn persónupplýsingar á rafrænan máta.
  • Þú æfir þig að nota hagnýtar vefsíður og smáforrit með tölvum og snjallsímum.
  • Málfræði er kynnt á mjög einfaldan hátt í tengslum við námsefnið.
  • Kunnátta þín er metin í lok námskeiðsins og þér veitt ráðgjöf um næstu skref í íslenskunámi þínu.

*Hvert námskeið er aðlagað viðkomandi nemendahópi og geta áherslur því verið mismunandi milli hópa til að mæta þörfum þínum.

 

 

Starts
7. Sep 2026
Type
On site
Price
39,400 kr.
Share
Send message
Share
Copy URL
Categories
More from Mímir - símenntun
Íslenska 6 fjarnám | Icelandic 6 online (B1.2)
Mímir - símenntun
Remote22. Sep
Íslenska 5 fjarnám | Icelandic 5 online (B1.1)
Mímir - símenntun
Remote14. Sep
Íslenska 4 fjarnám | Icelandic 4 online (A2.2)
Mímir - símenntun
Remote14. Sep
Íslenska 4 kvöldnámskeið | Icelandic 4 (A2.2)
Mímir - símenntun
On site15. Sep
Íslenska 4 laugardagstímar | Icelandic 4 (A2.3)
Mímir - símenntun
On site12. Sep
Íslenska 3 kvöld | Icelandic 3 evening class
Mímir - símenntun
On site15. Sep
Íslenska 3 laugard. | Iceland 3 Saturday class
Mímir - símenntun
On site12. Sep
Íslenska 3 morgun | Icelandic 3 morning class A2.1
Mímir - símenntun
On site07. Sep
Íslenska 2 f. litháenskumælandi | Islandų kalba 2
Mímir - símenntun
On site14. Sep
Íslenska 2 síðd./kvöld | Icelandic 2 - pm
Mímir - símenntun
On site14. Sep
Íslenska 2 laugardagstími | Icelandic 2 Saturday
Mímir - símenntun
On site12. Sep
Íslenska 2 morguntími | Icelandic 2 (A1.2) morning
Mímir - símenntun
On site07. Sep
íslenska 2 fyrir spænskum. | Islandés 2 (A1.2)
Mímir - símenntun
On site02. Sep
Íslenska 2 f. víetn.mæl. | Tieng Iceland 2
Mímir - símenntun
On site01. Sep
Íslenska 1 f. víetn.mæl. | Icelandic 1 f. Vietnam
Mímir - símenntun
On site01. Sep
Íslenska 1 síðd./kvöld | Icelandic 1 -pm/evening
Mímir - símenntun
On site14. Sep
Íslenska 1 laugardagsnám | Icelandic 1 Saturday
Mímir - símenntun
On site12. Sep
Íslenska 1 - morgunnámskeið | Icelandic 1 morning
Mímir - símenntun
On site07. Sep
íslenska 2 fyrir úkraínskumælandi | Ісландська 2
Mímir - símenntun
On site18. Aug
Íslenska 1 fyrir úkraínskumælandi | Ісландська 1
Mímir - símenntun
On site18. Aug
Menntastoðir
Mímir - símenntun
24. Aug
Íslenska 1 og atvinnulíf (A1.1) fyrir litháískum.
Mímir - símenntun
On site01. Sep28,600 kr.
Íslenska 1 og atvinnulíf (A1.1) f. rússneskum.
Mímir - símenntun
On site24. Aug28,600 kr.
Íslenska 1 og atvinnulíf (A1.1) | spænsku & portúg
Mímir - símenntun
On site24. Aug28,600 kr.
Íslenska 1 og atvinnulíf (A1.1) fyrir víetnömskum.
Mímir - símenntun
On site17. Aug28,600 kr.
Íslenska 1 og atvinnulíf (A1.1) fyrir úkraínskumæl
Mímir - símenntun
On site17. Aug28,600 kr.