Ferðaþjónusta bænda hf.
Ferðaþjónusta bænda hf. var stofnuð af íslenskum ferðaþjónustubændum 1991. Í dag eru sölusvið ferðaskrifstofunnar tvö; Hey Iceland sem sérhæfir sig í ferðalögum á landsbyggðinni og býður upp á fjölbreytt úrval af gistingu, afþreyingu og samsettum ferðapökkum og Bændaferðir sem býður upp á innihaldsríkar pakkaferðir með íslenskri farastjórn um allan heim.
Ferðaskrifstofan er vottuð af Vakanum og lögð er áhersla á sjálfbærni í starfsemi fyrirtækisins og ábyrga ferðaþjónustu til að lágmarka þau neikvæðu áhrif sem starfsemin kann að hafa á umhverfið og samfélagið.
Gildi fyrirtækisins eru virðing, gleði og framsækni.
Sölu- og markaðsstjóri
Ferðaþjónusta bænda hf. leitar eftir sölu- og árangursdrifnum leiðtoga til þess að stýra sölu- og markaðsmálum fyrir vörumerki fyrirtækisins Hey Iceland og Bændaferða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með sölu- og markaðsmálum fyrirtækisins
- Mótun sóknar- og markaðsáætlana ásamt fjárhagsáætlunum þeim tengdum
- Greining tækifæra og þarfa á mörkuðum vörumerkja
- Gegna leiðandi hlutverki í vöruþróun og nýsköpun
- Hugmyndavinna og mótun framtíðarsýnar
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla á sviði sölu- og markaðsmála ásamt víðtækri þekkingu á ferðaþjónustu
- Leiðtogahæfni, lausnamiðun og sköpunargleði
- Lipurð í mannlegum samskiptum og metnaður til að ná árangri
- Sölu- og árangursdrifinn
- Þekking á helstu greiningartólum
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Góð kunnátta í íslensku og ensku, í máli og riti
Auglýsing stofnuð3. maí 2024
Umsóknarfrestur20. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaMjög góð
Staðsetning
Síðumúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðFrumkvæðiHugmyndaauðgiLeiðtogahæfniMannleg samskiptiSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Þjónustufulltrúi / Reception Agent
Lotus Car Rental ehf.
Hótelstjóri á Hótel Borg
Borg Hótelrekstur ehf.
Hópstjóri í söludeild
Icelandia
Verkefnastjóri menningarmála
Atvinnu-, kynningar-og menningarmál
Sölu- og innheimtustjóri
STEF
Sölustjóri heildsölu
Bílanaust
Sales Development Manager - Ads, W+ subscription & Promotion
Wolt
Join Our Operations Team!
Tröll Expeditions
Viðurkenndur bókari & almennt skrifstofustarf
Premium Tours Iceland
Rental Service Agent - Keflavík
Indie Campers
Night Shift Receptionist
Hótel Keflavík & Diamond Suites
Sölustjóri
Umbúðir & Ráðgjöf