Baugur
Baugur
Baugur

Hlutastarf í leikskólanum Baug

Í Baugi starfa milli 50 og 60 manns sem sameinast á hverjum degi um það að hafa gaman. Gleði er að okkar mati lykillinn að starfsánægju. Við höfum gert með okkur sáttmála sem stuðlar að vellíðan starfsfólks en skýr, skilvirk, hlý og jákvæð samskipti eru þar í forgrunni. Samvinna og metnaður til að gera vel sameinar okkur alla daga og skapar okkar frábæru liðsheild!

Leikskólinn Baugur er 8 deilda leikskóli með 143 börnum í Kórahverfi í Kópavogi. Leikskólinn leggur áherslu á að skapa fjölbreytilegt leikumhverfi sem ýtir undir ímyndunarafl, sköpunarkraft og tjáningu barnanna. Unnið er að innleiðingu "Uppeldi til ábyrgðar" en finna má nánari upplýsingarum leikskólann á http://baugur.kopavogur.is/.

Vekjum athygli á nýjum nálgunum er varða bætt starfsumhverfi barna og kennarar í leikskólum Kópavogs. Sjá nánar hér

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Stúdentspróf æskilegt
  • Reynsla af vinnu með börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

Ráðningartími og starfshlutfall

  • Ráðningartími er samkomulag
  • Hlutastarf eftir hádegi

Starfskröfur

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila sakavottorði.

Upplýsingar gefa Margrét Björk, leikskólastjóri í síma 441-5601 og Elín Rós, aðstoðarleikskólastjóri í síma 441-5602 eða með því að senda póst á baugur@kopavogur.is

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfið felur í sér kennslu og umönnun
  • Sinnir verkefnum er varða uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf æskilegt
  • Góðir samskiptahæfileikar og hæfni við að vinna í hóp
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Gott vald á íslensku
Auglýsing stofnuð3. maí 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Baugakór 36, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar