Brekkubæjarskóli
Brekkubæjarskóli

Fagaðilar í stoðþjónustu Brekkubæjarskóla

Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 470 talsins, en starfsmenn um 100. Að auki státar skólinn af þéttriðnu neti stoðþjónustu.

Brekkubæjarskóli auglýsir lausar til umsóknar stöður fagaðila skólaárið 2024 - 2025. 

Leitað er að framsýnum, metnaðarfullum fagaðilum til að sinna stoðþjónustu við Brekkubæjarskóla. Viðkomandi þarf að geta unnið í góðu samstarfi við nemendur, samstarfsfólk og foreldra.

Fagaðili verður að geta skipulagt stuðning til náms fjölbreytts nemendahóps þar sem allir fá tækifæri til að njóta sín á eigin forsendum.

Fagaðili vinnur í árgangateymi með kennurum og stuðningsfulltrúum.

Þroskaþjálfi, iðjuþjálfi eða önnur sérgrein sem nýtist í starfi fagaðila.

Um er að ræða 80% stöður.

Ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst nk.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi í viðkomandi fagstétt (leyfisbréf fylgi umsókn).
  • Reynsla af bekkjarstjórnun.
  • Þekking og reynsla af teymivinnu og þverfaglegri samvinnu.
  • Reynsla og færni í fjölbreyttum kennslu/þjálfunaraðgerðum.
  • Reynsla af markmiðssetningu og áætlanagerð fyrir margbreytilegan hóp.
  • Reynsla og þekking á mati á þjónustuþörf.
  • Frumkvæði og sjálfstæði.
  • Góð samstarfshæfni.
  • Lipurð og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum.
  • Óbilandi trú á réttindum barna og ungmenna og áhugi á að starfa með þeim og foreldrum þeirra.
  • Góð íslenskukunnátta.
Auglýsing stofnuð24. apríl 2024
Umsóknarfrestur8. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Vesturgata 120, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þroskaþjálfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar