Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Bifvélavirki fólksbílaverkstæði Mercedes-Benz og smart

Bílaumboðið Askja óskar eftir að ráða bifvélavirkja á fólksbílaverkstæði Mercedes-Benz og smart. Boðið er upp á úrvals vinnuaðstöðu til þjónustu og viðgerða í húsnæði Öskju við Krókháls í Reykjavík.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Markmið okkar er að vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku, heiðarleika og gleði. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja.

Af hverju Askja?
  • Fjölskylduvænn vinnustaður
  • Reglulegir viðburðir og frábær starfsandi
  • Allir hafa rödd sem hlustað er á
  • Hugað er að velferð og vellíðan starfsfólks
  • Samgöngu- og líkamsræktarstyrkur
  • Líkamsræktaraðstaða
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn viðhalds-og viðgerðarvinna
  • Þjónustuskoðanir
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í bifvélavirkjun
  • Reynsla af vinnu á verkstæði kostur
  • Samstarfs- og samskiptahæfni.
  • Rík þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og mikil skipulagshæfni
  • Öguð, snögg og nákvæm vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar
  • Ökuréttindi
Auglýsing stofnuð24. apríl 2024
Umsóknarfrestur5. maí 2024
Staðsetning
Krókháls 11, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SveinsprófPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar